- Advertisement -

Ásta Guðrún lætur af formennsku

Ásta Guðrún Helgadóttir, þingkona Pírata, hefur sagt af sér formennsku í þingflokki Pírata.

„Í ljósi ágreinings milli mín og meirihluta þingflokks Pírata varðandi innra skipulag þingflokksins hef ég ákveðið að stíga til hliðar sem þingflokksformaður Pírata. Við vorum með ólíka sýn á hvert þingflokkurinn ætti að stefna og því held ég að það sé farsælast að annar taki við því starfi. Hlakka til að gerast óbreyttur þingmaður á ný, en þá gefst meiri tími til að vinna að þeim málefnum sem eru mér hugleikin,“ segir í yfirlýsingu frá henni.

-sme


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: