- Advertisement -

Bankasölumálið: „Sporin hræða“

„Að einkavæða banka korteri fyrir kosningar er stórmál. Að einkavæða banka í 100 ára djúpri kreppu er einfaldlega vont mál,“ sagði Ágúst Ólafur Ágústsson á Alþingi.

„Við fáum verra verð fyrir hlutinn og við fáum verri kaupendur. Það er 100 ára kreppa í gangi,“ sagði hann. „Það er ekkert annað ríki í heiminum að selja eignarhluti sína í banka og það eru fjölmörg ríki í Evrópu sem eiga eignarhlut í banka. Ríkið fær augljóslega ekki fullt verð fyrir söluna á þessum tíma.“

„Þessi hraði vekur upp spurningar og það er rétt að tortryggja ferlið. Sporin hræða.“

„Ég veit ekki betur en að í stefnu Vinstri grænna sé afskaplega skýrt kveðið á um að það beri að aðskilja fjárfestingarbanka og viðskiptabanka. Það stendur ekki steinn yfir steini hjá Vinstri grænum í þessu máli og ég skil ekki af hverju Vinstri grænir láta draga sig í þennan leiðangur rétt fyrir kosningar með illa undirbúið mál þar sem umræðan er engan veginn þroskuð og það er ekkert sérstakt ákall úti í samfélaginu um að þau taki þetta skref. Þetta er ámælisvert og þið þurfið að standa miklu fastari fótum hvað varðar þau rök ef þið ætla að sannfæra þjóð og þing um að þetta sé rétt,“ sagði Ágúst Ólafur og beindi orðum sínum sérstaklega til Ólafs Þórs Gunnarssonar Vinstri grænum.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: