- Advertisement -

Biskup rak séra Skírni

Kirkjan.is:  Prestar gegna afar sérstöku hlutverki þegar kemur að trúnaði gagnvart skjólstæðingum sínum. Það er eðli starfsins að vera hlustandi þegar hugur, sál og hjarta þurfa að tala um sín innstu mál.

Erfiðleikar og gleðistundir – sorg og sigrar eru allt kaflar í lífi mannsins. Presturinn hlustar, leiðbeinir, samgleðst og aðstoðar og gengur veginn fram með skjólstæðingi sínum.

Í ljósi þessa er trúnaðarskylda presta hornsteinn í sambandi þeirra við sóknarbörn og aðra skjólstæðinga.

Rjúfi prestur þessa trúnaðarskyldu gagnvart einhverjum skjólstæðingi sínum er það alvarlegt mál sem varðar við starfs – og siðareglur presta.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Hafa ber í huga að hverjum presti ber að tilkynna öll saknæm mál er varða börn og ungmenni til þar til bærra yfirvalda. Að öllu öðru leiti geymir prestur lífsögu manna hjá sjálfum sér, virðir trúnaðarskyldu sína og köllun.

Sr. Skírnir Garðarsson hefur starfað sem héraðsprestur frá árinu 2016. Í viðtali við Vísi.is þann 11. apríl greindi Skírnir frá viðkvæmum málefnum sóknarbarns, frá þeim tíma sem hann starfaði sem prestur við Lágafellssókn. Með viðtalinu rauf Skírnir trúnaðarskyldu presta og braut starfs – og siðareglur.

Sr. Skírnir Garðarsson hefur lokið þjónustu fyrir íslensku þjóðkirkjuna.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: