- Advertisement -

Bjarni vænir bótaþega um skattsvik

„Hver hefur ekki heyrt dæmi um fólk sem reynir að útvega sér starf þannig að tekjurnar séu ekki gefnar upp þannig að þær muni ekki hafa áhrif á réttindi í kerfinu? Það er staðreynd sem við verðum að viðurkenna og horfast í augu við.“

Þetta sagði fjármálaráðherrann, Bjarni Benediktsson, á Alþingi.

„Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að hjálpa fólki til sjálfshjálpar, að of miklar skerðingar dragi úr vilja fólks til að bjarga sér sjálft, t.d. að sækja sér aukatekjur með vinnu til að draga úr þörfinni fyrir annan stuðning,“ sagði Bjarni og eftir fylgdi ræða sem lýsir hvað kerfið er flókið, eða ræðumennsku Bjarna:

„Ef skerðingarreglurnar eru of grimmar held ég að þær muni verka letjandi. Ég held að það megi alveg halda því fram að þegar við erum að dansa með skerðingarmörkin á þessu bili sem við höfum verið, sem hefur verið frá 38,5% upp í 40% og jafnvel upp í 45%, og svo höfum við verið með dæmi um sérstaka stuðningsflokka, eins og sérstöku framfærsluuppbótina sem til skamms tíma var með krónu á móti krónu skerðingu, þá held ég að við séum að bjóða heim hættunni á ákveðinni bjögun.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: