- Advertisement -

Brynjar óviss um þingframboð í haust

„Alla jafna hefur það ekki þótt fréttnæmt að ég fari til útlanda í stuttan tíma hvað þá að það verði aðalfrétt þegar ég kem til baka. Ég var ekki að koma frá tunglinu eftir frækilega göngu í gömlum sporum Armstrongs. Í sama flugi voru á þriðja hundrað Íslendinga, allt yndislegt fólk sem ég trúi að kjósi mig næst verði ég í framboði,“ skrifar Brynjar Níelsson.

Þarna kemur fram að þingmaðurinn er óviss um sína pólitísku framtíð.

Skrifum Brynjars er ekki síður ætlað að skjóta á Kára Stefánssyni, sem kallaði Brynjar, Brynjar Trump Níelsson í Kastljósi í gær.

 „Þegar ég kom út af flugstöðinni í gærkvöldi og opnaði símann tók ég eftir því að Kári Steffensen hafði farið mikinn í Kastljósþætti, sem þá var nýlokið. Má segja að Kári sé sérfræðingur í öllu, öðrum fremri, og þar fékk ég og þjóðin öll ókeypis fræðslu um sóttvarnir og ekki síður lögfræði. Hann er sérfræðingur að sunnan og býr sennilega alveg syðst á landinu.“

Brynjar heldur áfram og skrifar næst um hrokann: 

Ég er ekki á móti sóttvarnaaðgerðum.

„Ég hef alltaf haft frekar gaman af hrokafullum mönnum. Dass af hroka getur stundum verið nauðsynlegt til að koma viti í umræðuna. En þegar hrokinn er bara hluti af óstjórnlegu frekjukasti missir hann marks og allur sjarmi hverfur. Þess vegna tapaði Donald Trump kosningunum síðast.

Rétt er að taka það fram að þessi utanferð mín var fjarri því að vera óþörf. Deila má um hvort hún hafi verið bráðnauðsynleg. Þannig stendur á að elsti bróðir minn býr á Spáni ásamt konu sinni, sem fékk alvarlegt heilablóðfall fyrir tæpu ári síðan. Hugsunin var sú að við bræður hans kæmum ásamt eiginkonum til að létta undir með honum í smá tíma. Einnig að gefa honum kost á að eiga stund með bróður okkar, sem glímir við Alzheimer, áður en hugurinn hverfur alveg. 

Þessi heift og reiði í minn garð sem skynja mátti hjá Kára í umræddum Kastljósþætti er augljóslega vegna gagnrýni minnar á aðgerðir yfirvalda í tengslum við frelsissviptingar á sóttvarnahóteli, sem voru alltof víðtækar og auk þess augljóslega ólögmætar. Geri mér grein fyrir því að sjónarmið Kára hafa víðtækan hljómgrunn í samfélaginu og ætla má að stjórnmálamenn sem tali gegn þeim séu annað hvort fullkomnir fávitar eða að kveðja stjórnmálin.

Hvað sem því líður megum við ekki ganga lengra gegn réttindum fólks en nauðsynlegt er og lög heimila. Það er hins vegar hætt við að það vefjist ekki fyrir fólki að samþykkja slíkt þegar óttinn og hræðslan er alls ráðandi. Með aðgerðum sem skerða réttindi fólks meira en góðu hófi gegnir getum við nefnilega skaðað samfélagið meira en veiran sjálf.

Ég er ekki á móti sóttvarnaaðgerðum og hef aldrei verið. Geri engar athugasemdir við að vera í sóttkví heima hjá eftir þessa ferð og uni því vel. Stjórnvöld hafa að mestu leyti staðið sig vel og gera það vonandi áfram. Einu áhyggjur mína í augnablikinu eru af því hvernig eiginkonunni muni reiða af eftir að hafa setið föst með mér í fimm daga.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: