- Advertisement -

EES-samningurinn á sér ekki langa framtíð óháð því hvað Ísland ákveður

Þessa frétt er að vinna á ff7.is:

„Við sem flokkur erum eindreginn já-flokkur og það er mikill áhugi á ESB innan Hægriflokksins,“ sagði Ine Eriksen Søreide, fyrrum utanríkisráðherra Noregs og nú formaður Hægriflokksins í Noregi, í viðtali við Aftenposten sl. haust.

Hún bætti því við að flokkur hennar væri reiðubúinn til að leiða nýja umræðu um aðild Noregs að ESB.

Komandi þjóðaratkvæðagreiðsla hér á landi hefur heldur betur komið miklu skriði á þessa umræðu í Noregi og fyrr í dag kallaði Søreide eftir áætlun ríkisstjórnar Verkamannaflokksins við þeirri stöðu sem gæti komið upp ef Ísland ákveður að fara í aðildarviðræður.

Hún telur að gangi Ísland í ESB þá verði í raun ekkert eftir af EES-samningnum. Hún er reyndar ekki bjartsýn á að samningurinn eigi sér langa framtíð.

„Ég held að EES-samningurinn muni ekki lifa af til lengri tíma litið, og ég held að það gerist óháð vali Íslands. Þetta snýst um að ESB er með allt önnur forgangsmál,“ bætti hún við í viðtali við DN.

Søreide tók við Hægriflokknum í Noregi í febrúar sl. en flokkurinn er systurflokkur Sjálfstæðisflokksins. Forysta þess flokks er andvíg því að aðildarviðræður Íslands við ESB verði teknar upp á ný.

Carl Bildt, fyrrum leiðtogi hægrimanna í Svíþjóð, sagðist undrandi á þessari línu Sjálfstæðisflokksins í viðtali við FF7 í vikunni.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: