- Advertisement -

Elli- og örorkulífeyrir verði 368.000

Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur lagt fram frumvarp þar sem gert er ráð fyrir að elli- og örorkulífeyrir almannatrygginga fylgi þróun lágmarkslauna í samræmi við kjarasamninga og verði 368 þús. kr. árið 2022.

  • Lagt er til að upphæðin þróist með eftirfarandi hætti: 
  •     1. apríl 2019     317.000 kr. á mánuði. 
  •     1. apríl 2020     335.000 kr. á mánuði. 
  •     1. janúar 2021     351.000 kr. á mánuði. 
  •     1. janúar 2022     368.000 kr. á mánuði. 

„Ljóst er að stór hópur aldraðra og öryrkja býr við fátækt. Tæplega fjórðungur öryrkja býr við skort á efnislegum gæðum samkvæmt nýjustu rannsóknum Hagstofu Íslands og eru öryrkjar sá hópur sem verst stendur þegar þátttakendur eru greindir eftir atvinnustöðu. Frá árinu 1998 hefur kjaragliðnun öryrkja numið 59,4% samkvæmt tölum sem unnar hafa verið fyrir málefnahóp Öryrkjabandalags Íslands um kjaramál,“ segir í greinargerðinni með frumvarpinu.

Þar segir einnig: „Staðan er nú þannig að þúsundir lífeyrisþega ná ekki viðmiðum um lágmarkslífeyri og fá þar af leiðandi sérstaka uppbót til framfærslu.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: