- Advertisement -

Er fjárlagafrumvarpið eitt stórt prump?

Forystufólk launafólks hafa greint fjárlagafrumvarp fjármálaráðherra. Óhætt er að segja að frumvarpinu er ekki fagnað. Þau finna margt sem veldur vonbrigðum. Viðbrögð fólks eru blandin.

Halla Gunnardóttir, formaður VR, skrifaði meðal annars: „Það sem veldur einna mestum áhyggjum í nýja hallaleysinu er tilhneiging til að nota aukin gjöld til að loka gatinu (fremur en til dæmis skatta á þá sem mest eiga). Hækkaðar gjaldskrár rata beint inn í verðbólguna og því greiðum við þær ekki aðeins í gegnum kílómetragjald eða komugjöld, heldur líka í gegnum verðbólguþrýsting og á endanum húsnæðiskostnað. Þetta getur aftur lengt í hávaxtastefnunni en það er einmitt vaxtakostnaður sem hvílir hvað þyngst á ríkissjóði. Þennan spíral þarf að stöðva, fremur en að viðhalda.“

Hér er hægt að lesa alla grein Höllu.

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starsfgreinasambandsins, skrifaði meðal annars: „Nú stöndum við frammi fyrir endurskoðun á forsendum kjarasamninganna og það er morgunljóst að stjórnvöld eru ekki að auðvelda okkur það verkefni að koma í veg fyrir forsendubrest með þessum fjárlögum. Þvert á móti. Við náum ekki niður verðbólgu með því að kasta sífellt meira spreki á verðbólgubálið.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Hér er hægt að lesa alla grein Vilhjálms.

Eiríkur Örn Norðdahl rithöfundur: „Bókasafnssjóður skorinn niður úr 224,5 milljónum í 142,3. Þetta er bein tekjuskerðing fyrir rithöfunda og þýðendur – og aldrei upphæð sem samið er um, við ráðum engu hvaða endurgjald við fáum fyrir afnot af bókum okkar á bókasöfnum, höfum ekkert að segja, alltaf bara ný og ný upphæð á hverju ári. Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“

Hér er aðeins sýnishorn af því sem sagt hefur verið og skrifað. Ljóst er að frumvarpið mun sæta harðri gagnrýni stjórnarandstöðunnar á Alþingi. En þingið verðru sett á morgun.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: