
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, skrifar:
„Ég verð að segja að ég hef verulegar áhyggjur af þeim skatt- og gjaldahækkunum sem boðaðar eru í fjárlögum fyrir árið 2027 – ekki síst þegar stærsta verkefnið á að vera að ná niður verðbólgu og vöxtum.
Skoðum bara hvað er að koma beint á launafólk, heimili og barnafjölskyldur:
Kílómetragjald hækkar um 15,9% – 4,0 ma.kr. aukin tekjuöflun.
Persónuafsláttur hækkar minna en ella – um 3,0 ma.kr. aukin skattbyrði.
Barnabætur halda ekki verðgildi sínu annað árið í röð – um 1,1 ma.kr. raunskerðing.
Vaxtabætur falla niður – 800 m.kr. skerðing.
Síðan koma auknir
skattar og gjöld
á atvinnulífið.
Þetta eitt og sér eru nærri 9 milljarðar króna sem sóttir eru til fólks eða sparaðir með skerðingu á stuðningi við heimilin.
Og þá er langt frá því allt talið. Bifreiðagjald hækkar um 5,2%, kolefnisgjald um 5,2%, RÚV-gjald um 5,2% og fleiri opinber gjöld hækka.
Síðan koma auknir skattar og gjöld á atvinnulífið. Þar skulum við ekki blekkja okkur. Það skiptir ekki bara máli á hvern skatturinn er lagður heldur hver greiðir reikninginn að lokum.
Auknar álögur á fyrirtæki geta skilað sér til okkar neytenda með hærra vöruverði, hærri gjaldskrám og hærri þjónustugjöldum. Þá er almenningur aftur farinn að greiða reikninginn.
Og nú er markaðurinn sjálfur farinn að senda okkur viðvörunarmerki.
Eftir framlagningu fjárlaganna hefur verðbólguálag á skuldabréfamarkaði hækkað og markaðurinn er farinn að verðleggja meiri verðbólgu. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka hefur bent á að gjaldahækkanir ríkisins komi inn í verðbólgumælinguna og að útbreidd verðtrygging opinberra gjaldskráa viðhaldi verðbólgunni.
Þá hlýt ég að spyrja:
…allir ætluðu að
axla ábyrgð á því
að ná niður
verðbólgu og vöxtum.
Hvernig í ósköpunum eigum við að ná niður verðbólgu og vöxtum með því að hækka skatta og gjöld sem fara að hluta beint eða óbeint út í verðlagið?
Auðvitað þarf að ná jafnvægi í ríkisfjármálum. En það skiptir öllu máli hvernig það er gert.
Launafólk lagði sitt af mörkum með hófstilltum langtímakjarasamningum í þeirri trú að allir ætluðu að axla ábyrgð á því að ná niður verðbólgu og vöxtum.
Nú stöndum við frammi fyrir endurskoðun á forsendum kjarasamninganna og það er morgunljóst að stjórnvöld eru ekki að auðvelda okkur það verkefni að koma í veg fyrir forsendubrest með þessum fjárlögum. Þvert á móti.
Við náum ekki niður verðbólgu með því að kasta sífellt meira spreki á verðbólgubálið.“