Jóhann Þorvarðarson skrifar:
Sérfræðingur Eflingar, prófessor emiritus Stefán Ólafsson, hefur tekið af skarið og tilkynnt að hann kjósi já á laugardaginn. Hann útskýrir afstöðu sína af skynsemi og án öfga.
Niðurstaða hans er að fullreynt sé með íslensku krónuna. Stýrivextir hér séu alltaf mikið hærri en í kringum okkur, sem bitnar illa á fólki og fyrirtækjum.
Sjálfur lýsir Stefán krónunni svona í grein hjá Heimildinni: Íslendingar vita að langtímasaga krónunnar er mikil hrakfallasaga. Hún einkennist af gríðarlegri virðisrýrnun, óðaverðbólgu, risavöxnum gengisfellingum og kjaraskerðingum, fjármálahruni, gjaldeyrishöftum (síðast frá 2008 til 2017) og almennt miklum óstöðugleika.
Fyrir heimili og fyrirtæki með húsnæðislán skiptir stöðugleiki og lágt vaxtastig öllu máli. Þess vegna er rétt að skoða hvort aðrar leiðir geti skilað betri árangri en minnsta mynt veraldar. Þar efst á blaði eru óskuldbindandi aðildarviðræður við Evrópusambandið um evruna.