- Advertisement -

SEÐLABNKI Á AÐ GETA GERT BETUR

Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifaði:

„Fyrir rúmum 17 mánuðum síðan óskaði fjárlaganefnd Alþingis eftir upplýsingum um kostnað við rekstur gjaldeyrisvarasjóðs Seðlabankans m.a. vegna vaxtakostnaðar af skuldum sem standa á móti forðanum.

Í gær birtist loksins svar þar sem vísað er fyrst og fremst í torskilda töflu þar sem virðist að hluta til að finna upplýsingar um aðra hluti en spurt var um en fram kemur eftirfarandi í svarinu:

„Seðlabankinn hefur ekki metið hvaða hlutfall af vaxtagjöldum bankans megi tengja beint fjármögnun gjaldeyrisforðans frekar en öðrum hluta peningastefnu bankans“

Mér finnst þessi seinagangur og óskýrleiki ekki góður og gefa til kynna að breytinga sé þörf.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: