ff7.is: Peningamálastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækkaði í morgun meginvexti sína úr 7,75 prósentum í 8 prósent. Þetta er í takt við spár greiningaraðila bankanna.
Samtök iðnaðarins höfðu hvatt til þess að vöxtum yrði haldið óbreyttum eftir tvær hækkanir í röð og vísuðu til þess að hagkerfið kólnaði hratt og aðhaldsstig peningastefnunnar væri þegar mikið.
Með hækkun dagsins þá breikkar bilið á milli íslenskra stýrivaxta og þess sem þekkist á hinum Norðurlöndunum. Í Noregi eru meginvextirnir þeir næsthæstu eða 4,25 prósent. Finnland er eina norræna ríkið sem notast við evru.
Verðbólga hér á landi er líka meiri eins og sjá má hér fyrir neðan.
Þú gætir haft áhuga á þessum
