Arnór Sighvatsson, fyrrum varaseðlabankastjóri skrifar grein sem birt var á Vísi. Hér eru tveir litlir hlutar hennar:
„Maga-hreyfingin sem nú ræður ríkjum virðist fremur hneigjast til samstöðu með Rússlandi en lýðræðisríkjum Evrópu. Fyrrum forseti Íslands sagði nýtt forrit hafa tekið sér bólfestu í höfðum ráðamanna vestra, en lét þess ógetið hvers eðlis forritið væri. Það er vírus! Vírus fasisma. Margir hafa hikað við að nota svo sterkt orð um framgöngu Maga-hreyfingarinnar, en ofbeldisverkin sem unnin voru í janúar árið 2020, til þess að hindra lýðræðisleg valdaskipti, sannfærðu jafnvel varfærna sagnfræðinga um skyldleika hreyfingarinnar við fasískar hreyfingar á fyrri hluta 20. aldar. Hún er þáttakandi í alþjóðlegri hreyfingu ofstækisfólks, sem Pútin Rússlandsforseti, Orban, fyrrverandi forsætisráðherra Ungverjalands og fleiri slíkir hafa veitt hugmyndafræðilega forystu.“
Og síðar:
„Mikilvægur þáttur í dýpkun viðskiptasambands Íslands og Evrópu felst í aðgangi að tollabandalagi ESB. Aðgangur að tollabandalaginu myndi minnka skrifræði í viðskiptum Íslands og ríkja ESB, auk þess sem tollar falla niður á þeim hluta útfluttra sjávarafurða til ESB-ríkja sem enn er greiddur tollur af. Þá myndi aðildin koma í veg fyrir að Íslands verði leiksoppur verndartolla komi upp deilur um niðurgreiðslur. Bretar hafa á undanförnum árum kynnst ókostum þess, í formi aukins viðskiptakostnaðar og tafa, að standa utan tollabandalagsins og innri markaðarins.“