- Advertisement -

Til þess þurfum við ekkert leyfi frá Brussel. Þetta getum við ákveðið sjálf

Vilhjálmur Birgisson skrifaði:

Við heyrum líka sífellt að við þurfum að ganga í Evrópusambandið til að fá lægri vexti og betri kjör fyrir heimilin. En við getum tekið fjölmargar ákvarðanir sjálf hér og nú til að bæta stöðu íslenskra heimila.

„Fyrst ákveðið hefur verið að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst, þá spyr ég einfaldlega. Ef við treystum þjóðinni til að taka afstöðu til eins stórs máls um framtíð Íslands, af hverju ættum við þá ekki að treysta henni til að segja sína skoðun á öðrum grundvallarmálum sem hafa bein áhrif á fjárhag heimilanna og lífskjör almennings?

Af hverju ekki að nýta þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og spyrja þjóðina líka:

Vilt þú að verðtrygging verði bönnuð með öllu á neytendalánum einstaklinga og heimila?

Vilt þú að bannað verði að vísitölutengja samninga…

Vilt þú að bannað verði að vísitölutengja samninga þannig að verðbólga leiði ekki sjálfkrafa til hækkunar á leigu, gjaldskrám, þjónustu og öðrum skuldbindingum almennings?

Vilt þú að Landsbankinn verði gerður að raunverulegum samfélagsbanka sem hafi það að markmiði að bjóða almenningi lægri vexti og lægri þjónustugjöld og veita öðrum fjármálafyrirtækjum raunverulegt samkeppnislegt aðhald?

Þetta eru ekki einhver aukaatriði. Þetta eru mál sem snerta nánast hvert einasta heimili í landinu.

Verðtryggingin hefur í áratugi tryggt að verðbólguáhættunni sé að stórum hluta velt yfir á skuldara. Vísitölutengdir samningar sjá síðan til þess að verðbólgan getur sjálfkrafa leitt til hækkunar á leigu, gjaldskrám og ýmiss konar þjónustu. Hækkanirnar ganga síðan áfram í gegnum hagkerfið og geta ýtt undir frekari verðbólgu.

Af hverju ættum við ekki að spyrja þjóðina hvort hún vilji höggva á þessa sjálfvirku verðbólgukeðju?

Við heyrum líka sífellt að við þurfum að ganga í Evrópusambandið til að fá lægri vexti og betri kjör fyrir heimilin. En við getum tekið fjölmargar ákvarðanir sjálf hér og nú til að bæta stöðu íslenskra heimila.

Við getum bannað verðtryggingu á neytendalánum.

Við getum bannað sjálfvirka vísitölutengingu samninga.

Við getum gert Landsbankann…

Við getum gert Landsbankann að öflugum samfélagsbanka sem býður lægri vexti og þjónustugjöld og skapar raunverulega samkeppni á bankamarkaði.

Til þess þurfum við ekkert leyfi frá Brussel. Þetta getum við ákveðið sjálf.

Þess vegna spyr ég þá sem tala hvað mest um mikilvægi þess að þjóðin fái að segja sína skoðun 29. ágúst:

Eigum við ekki að treysta þjóðinni fyrir þessum málum líka?“

Greinina birti Vilhjálmur á Facebook.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: