- Advertisement -

Upptaka evru yrði eitt stærsta kaupmáttartækifæri þjóðarinnar

Baldur Pétursson skrifar aldeilis mikla grein á Vísi.

Hér að neðan er aðeins lítill hluti greinarinnar og hér er greinin öll:

„Íslenska krónan er ekki bara gjaldmiðillinn sem við borgum með. Hún er hluti af kerfi sem hefur áhrif á vexti, verðbólgu, lánskjör, húsnæðisverð, sparnað, lífeyri og lífskjör. Mér finnst þetta oft gleymast. Smæð krónunnar skapar meiri óvissu, hærra áhættuálag og hærri vexti en innan stærra myntsvæðis. Reikningurinn lendir á fólki, fyrirtækjum, sveitarfélögum og ríkinu. Þetta sést best þegar eitthvað bjátar á. Fjármálakreppa eða högg á ferðaþjónustu getur leitt til gengisfalls, verðbólgu og vaxtahækkana. Krónan getur þá magnað áfallið upp.“

Afnám krónuskattsins með upptöku evru væri eitt stærsta kaupmáttartækifæri þjóðarinnar, ekki síst fyrir fólk með lágar og meðalháar tekjur.

Ákvörðunin er okkar.

Þjóðin á betra skilið.

Unga fólkið á betra skilið.

Fjölskyldur landsins eiga betra skilið.

Eldra fólk á betra skilið.

Atvinnulífið á betra skilið.

Hingað og ekki lengra. Það er komið nóg.

JÁ 29. ágúst — til betri lífskjara.

Baldur Pétursson er fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu, EBRD, og hefur víðtæka innlenda og erlenda reynslu af greiningu, stefnumótun, alþjóðlegum fjármálum, EES- og ESB-málum, orku- og atvinnumálum. Hann er með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum frá Boston University og er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: