- Advertisement -

Vilhjálmur segir vexti, verðbólgu og verðtryggingu ekki vera náttúrulögmál

Vilhjálmjur Birgisson á Akranesi skrifar langa grein á Facebook. Þar má finna þennan kafla:

„Vextir, verðbólga og verðtrygging eru ekki náttúrulögmál.

Þetta eru mannanna verk og mannanna verkum er hægt að breyta.

Við getum afnumið verðtrygginguna.

Við getum gert Landsbankann að samfélagsbanka, lækkað arðsemiskröfuna og látið ríkisbankann leiða raunverulega samkeppni með lægri vöxtum og þjónustugjöldum.

Við getum breytt umgjörð lífeyrissjóðanna og heimilað þeim að fjárfesta meira erlendis.

Við getum tekið á ríkisfjármálunum og þeim innlendu þáttum sem ýta undir verðbólgu.

Það eina sem þarf er kjarkur, þor og pólitískur vilji til að taka slaginn – og hætta þessu skefjalausa dekri við fjármálaöflin.“

Ef lausnin er svona auðsótt, er spurt: Hvers vegna hefur ekkert af þessu tekist? Hvað stendur í veginum? Eru það Samtök atvinnulifsins?


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: