Dagur B. Eggertsson skrifaði:
„Skrifaði grein um nýja greiningu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins um upptöku evru. Það er galið hvað lítið hefur verið fjallað um niðurstöður þessarar helstu sérfræðistofnunar heims í efnahagsmálum í þessum efnum.
Kannski er það vegna þess að AGS staðfestir að vextir og verðbólga myndu lækka með aðild að ESB. Því hefur verið afneitað – með hæpnum eða engum rökum – af einstökum talsmönnum NEI umræðunnar. Lægri verðbólga og vextir er helsta hagsmunamál launafólks og fyrirtækja á Íslandi. Segi ég og skrifa.
Eftir að hafa grúskað í fjórum helstu skýrslum sem gerðar hafa verið um upptöku evru undanfarin ár stend ég við þá súmmeringgu sem sótt er í eina þeirra:
Upptaka evru yrði gríðarlegur velferðarábati fyrir íslenskt samfélag.
Rökin hrannast upp. Greining AGS kallast á við og staðfestir fyrri skýrslur sem mæla með upptöku evru, þótt AGS taki ekki beina afstöðu í því efni. Lækkun verðbólgu og vaxta, hagur heimila, samkeppnisstaða fyrirtækja, og atvinnulífs og auknar fjárfestingar og utanríkisviðskipti myndu fylgja evrunni. Til viðbótar fylgir því gríðarlegur kostaður ríkis og sveitarfélaga því að halda úti krónunni. Fjölmörg rök leiða því til þeirrar niðurstöðu að upptaka evru sé mikið hagsmunamál fyrir íslenskt samfélag.”
Fyrri grein Dags, sem hann vitnar til, er hér.