Marinó G. Njálsson skrifaði:
Fróðleikur fyrir þá sem ímynda sér að skattahækkanir og útgöld íslenska ríkisins aukist þegar aðrir en sjálfstæðis- og framsóknarmenn eru við völd. Þarna kemur þveröfugt í ljós.
Var að skoða vöxt útgjalda ríkissjóðs, vegna umræðu sem skattaæði núverandi ríkisstjórnar. Tek skýrt fram, að ég tel að ríkissjóður verður að beita hófsemd þegar kemur að hækkunum tekna sem rata út í vísitölu neysluverðs.
Árið 2000 voru útgjöld ríkissjóðs um 246 milljarðar en fjárlög fyrir þetta ár gera ráð fyrir 1.626 milljörðum. Þetta er lang leiðina í sjöföldun útgjalda og til hafa það nákvæmt, þá hafa útgjöldin aukist um 561% í 259% verðbólgu (miðað við vísitölu í desember 1999 og ágúst 2026). Ef við skiljum útundan ár þar sem eru augljós afbrigði á útgjöldum ríkissjóðs, t.d. hækkuðu „útgjöld“ um 74% árið 2008 vegna endurreisnar bankanna og lækkuðu síðan um 17,4% ári síðar, þrátt fyrir mikil útgjöld vegna hrunsins, þannig að hækkunin milli 2007 og 2009 reyndist tæp 44%.
Sé þessu skipt upp í tímabil, eftir því hvaða flokkar eru við völd, þá má skipta þessu í eftirfarndi tímabil (miðað er við í hvaða flokki fjármálaráðherra var sem lagði fram fjárlög hvers árs):
- 1. 2000-2007: Ríkisútgjöld fóru úr 246 ma. kr. í 471 ma. kr. hækkun um 234% í 45% verðbólgu – Sjálfstæðisflokkur með fjármálaráðherra allan tímann.
- 2. 2008 og 2009: Ríkisútgjöld voru 822 og 679 ma. kr. Þó verðbólgan hafi verið mikil liggur sökin ekki þar. – Tel þessi ár sé ekkert að marka.
- 3. 2010-2013: Ríkisútgjöld héldust stöðug í kringum 680 ma. kr. þrátt fyrir 2,4-5.3% verðbólgu á hverju ár. – Fjármálaráðherrar frá VG og Samfylkingu.
- 4. 2014-2025: Ríkisútgjöld fóru úr 716 ma. kr. árið 2014 í 1.606 ma. kr. árið 2025 eða 123% hækkun í 59% verðbólgu. – Fjármálaráðherra frá Sjálfstæðisflokki, fyrir utan að fjármálaráherra úr Framsókn lagði fram fjárlög fyrir 2025.
- 5. 2026: Fjárlög gera ráð fyrir 1,2% hækkun ríkisútgjalda frá fyrra ári, en búast má við því að verðbólgan verði um eða yfir 6%. – Fjármálaráðherra frá Viðreisn.
Vissulega hafa orðið miklar breytingar á íslensku þjóðfélagi á þessari öld, en ljóst er að ríkisútgjöld hafa aukist hraðar og meira en æskilegt væri. Merkilegast er að hækkanir útgjalda eru stöðugar og miklar. Fimmtán ár af þessum 24, sem ég tel mark á takandi (sleppi 2008 og 2009), hækka ríkisútgjöld um meira en 5% á milli ára. Aðeins eitt af þessum árum varð ársverðbólgan meiri. Ekki það, að verðbólga á ekki að vera einhver mælir á þarfir ríkisins til hækkana útgjalda og aðhald í ríkisútgjöldum er auk þess besta leiðin til að halda aftur af verðbólgunni.
Ýmislegt má lesa úr þessum tölum og ætla ég að leyfa lesendum að mynda sínar skoðanir. Ég held hins vegar að skoða þarf vel hvers vegna þetta gerðist.“
- Heimild:
- Hagstofa – Helstu hagstærðir ríkissjóðs 1980-2025
- Hagstofa – Vísitala neysluverðs og breytingar, grunnur 1988=100 (Tekið skal fram, að miðað er við ársverðbólgu það ár sem fjárlög eru lögð fram.)
Greinina birti Marinó fyrst á eigin Facebooksíðu. Grreinin er birt hér með leyfi höfundar.
Fyrirsögnin er Miðjunnar.
