Þau kasta sjálf viðstöðulaust spreki á verðbólgubálið!
Vilhjálmur Birgisson skrifaði:
Nú liggur það svart á hvítu fyrir.
12 mánaða verðbólga mælist 5,6% í ágúst. Forsenda kjarasamninganna var skýr: verðbólgan átti að vera komin niður fyrir 4,7%.
En hvað gera
stjórnvöld
á sama tíma?
Þetta er ekki matsatriði.
Mælikvarðinn var 4,7% – niðurstaðan er 5,6%. Forsendurnar eru brostnar.
Og staðan er í raun enn verri.
Stjórnvöld lækkuðu tímabundið virðisaukaskatt á eldsneyti úr 24% í 11%. Sú aðgerð hefur haldið aftur af mældri verðbólgu en fellur úr gildi 1. september. Áhrif aðgerðarinnar á ársverðbólgu hafa verið metin í kringum 0,4 prósentustig. Undirliggjandi verðbólga er því í raun nær 6% en 5,6%.
En hvað gera stjórnvöld á sama tíma?
Þau kasta sjálf viðstöðulaust spreki á verðbólgubálið!
Skrásetningargjöld opinberra háskóla hafa verið hækkuð úr 75.000 í 100.000 krónur – um 33% hækkun.
Og þann 1. september hækkar almennt komugjald á heilsugæslu úr 500 krónum í 1.000 krónur – 100% hækkun! Þá kemur einnig ný gjaldtaka vegna ýmiss konar þjálfunar innan heilbrigðiskerfisins.
Þetta gerist á sama tíma og launafólk var beðið um að sýna ábyrgð og ganga til langtímakjarasamninga til að skapa skilyrði fyrir lækkandi verðbólgu og lægri vöxtum.
Launafólk lagði sitt af mörkum.
En hið opinbera hefur brugðist.
En hið opinbera
hefur brugðist.
Það er hreint út sagt sorglegt að horfa upp á stjórnvöld kasta viðstöðulaust spreki á verðbólgubálið með hækkunum á opinberum gjöldum á sama tíma og þau vita fullvel hversu alvarlegar afleiðingar verðbólgan og okurvextirnir hafa fyrir heimilin.
Háskólagjöld hækka.
Heilsugæslugjöld tvöfaldast.
Ný gjöld eru lögð á.
Tímabundin skattalækkun á eldsneyti rennur út.
Og verðbólgan er 5,6% í stað 4,7%.
Það er erfitt að komast að annarri niðurstöðu en að stjórnvöld hafi einfaldlega gefist upp á verkefninu.
Og þá verður líka að vera alveg skýrt:
Launafólk á ekki að greiða reikninginn fyrir þann uppgjafartón stjórnvalda.
Forsendur kjarasamninganna eru brostnar.
Það er staðreynd sem verður ekki töluð í burtu.