
Björn Leví Gunnarsson skrifaði:
„Þetta er hræðsluáróður. Hérna er dregin fram gersamlega óraunhæf upphæð sem „gæti orðið“. Tilgangur svona framsetningar er að gera fólk áhyggjufullt yfir einhverri fræðilegri framtíð sem gæti kannski gerst ef … bla bla bla.
Af hverju veit ég að þetta er ekki satt?
Af því að fjárhagsrammi ESB þarf að vera samþykktur einróma. Af því að ef Ísland myndi greiða eins og það land sem greiðir mest (per haus) og fá eins og það land sem fær minnst (per haus) þá væri upphæðin 25 milljarðar nettó miðað við gögnin frá 2024.
Það er versta mögulega niðurstaðan.
Gögnin eru öll aðgengileg í vinnuskjali framkvæmdastjórnarinnar sem ég setti upp í aðgengilegra útlit.“