Halla Gunnarsdóttir, formapur VR skrifar:
„Fjárlagafrumvarp næsta árs hefur nú litið dagsins ljós og ríkisstjórnin skrifar 0 á blað með stolti. Hið lofaða hallaleysi komið í excel-skjalið. En hvað kostar núllið?
Við erum byrjuð að rýna frumvarpið og hér eru nokkur atriði sem skipta launafólk máli:
Í fjárlagafrumvarpinu er ekki gert ráð fyrir neinum aðgerðum sem ýta undir möguleika á að kjarasamningar geti haldið.
…munu gjaldskrár
hækka í takti við
verðbólgu…
Verkalýðshreyfingin og atvinnurekendur hafa kallað eftir frystingum á gjaldskrám til að draga úr verðbólgu og uppfylla loforð gagnvart gildandi kjarasamningum. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu munu gjaldskrár hækka í takti við verðbólgu og þannig auka álögur á vinnandi fólk og viðhalda verðbólgunni.
Kílómetragjaldið verður snarhækkað, sem mun koma við veskið hjá okkur velflestum og skila sér beina leið inn í verðbólguna.
Olíuverðþakið virðist ekki eiga að gilda áfram, en það var framsækin leið til að verja íslensk heimili gegn yfirgengilegum verðbólguáhrifum af árásarstríði Bandaríkjanna gegn Íran. Einhverra hluta vegna er það hætt að skipta ríkisstjórnina máli að verja heimilin með þessum hætti.
Kyrrstaða í húsnæðismálum: stofnframlög inn í almenna íbúðakerfið verða dregin saman vegna þess að ríki og sveitarfélög virðast hafa gefist upp á verkefninu að koma á stöðugleika í húsnæðismálum.
Endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna íbúðarhúsnæðis verður lækkuð sem þýðir að viðhald fasteigna verður dýrara. Það, ásamt öðrum niðurfellingum á endurgreiðslu getur einnig leitt til aukins atvinnuleysis á samdráttartímum og dregið úr nauðsynlegri íbúðauppbyggingu.
Breytingar á útreikningi persónuafsláttar þýða í rauninni lækkun á persónuafslætti sem er skattahækkun á allt launafólk.
Húsnæðis- og barnabætur eru látnar rýrna áfram en þær eru eitt besta tækið til að ná til þeirra hópa sem eru í viðkvæmustu stöðunni á tímum ofurvaxta.
Það eru vonbrigði
að ekkert komi fram…
Við í VR höfum gagnrýnt hina miklu áherslu ríkisstjórnarinnar á hallalaus fjárlög. Jöfnuður á ríkisútgjöldum getur ekki verið markmið í sjálfu sér, heldur einungis tæki á stærri vegferð sem lýtur að öflugu efnahagslífi og samfélagslegri velferð. Það á að vera ófrávíkjanleg skylda að fara vel með opinbert fé, en hallalaus fjárlög þjóna ekki tilgangi sínum ef niðurstaðan er aukin verðbólga, vaxandi atvinnuleysi og stöðnun, sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir efnahagslífið og samfélagið til langs tíma. Enda þykir niðurskurðarstefna ekki góð hagfræði, þótt hún njóti enn víða stuðnings sem pólitísk hugmyndafræði.
Það sem veldur einna mestum áhyggjum í nýja hallaleysinu er tilhneiging til að nota aukin gjöld til að loka gatinu (fremur en til dæmis skatta á þá sem mest eiga). Hækkaðar gjaldskrár rata beint inn í verðbólguna og því greiðum við þær ekki aðeins í gegnum kílómetragjald eða komugjöld, heldur líka í gegnum verðbólguþrýsting og á endanum húsnæðiskostnað. Þetta getur aftur lengt í hávaxtastefnunni en það er einmitt vaxtakostnaður sem hvílir hvað þyngst á ríkissjóði. Þennan spíral þarf að stöðva, fremur en að viðhalda.
Forsenduákvæði kjarasamninga eru brostin vegna þessa efnahagsástands, en fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar gerir enga tilraun til þess að ná tökum á stöðunni. Það eru vonbrigði að ekkert komi fram sem ýtir undir bjartsýni á að kjarasamningar geti haldið. Við í VR, LÍV og Fagfélögunum höfum hafið viðræður við SA um leiðir fram á við og stöndum einnig að sameiginlegum málum gagnvart ríkisstjórn og SA á vettvangi ASÍ.
Allt bendir til þess að það sé þungur róður framundan. Ríkisstjórnin náði núlli, en launafólk er komið í meiri mínus.“