„En hvað gerist ef þjóðin segir nei í ágúst? Tekur forsætisráðherra sömu afstöðu og Cameron og axlar ábyrgð, eða situr hún sem fastast og segir áfram að málið komi sér ekki við? Eflaust verður það niðurstaðan að sitja sem fastast, en það gæti orðið erfitt og því erfiðara sem tíminn líður. Rétt eins og tapið veikti Cameron mun tap í ágúst veikja Kristrúnu Frostadóttur, hvort sem hún viðurkennir það eða ekki. Hún lét Viðreisn draga sig út í fen sem engum ávinningi getur skilað og hver sem niðurstaðan verður þá veikist forsætisráðherrann.
Verði niðurstaðan já, þá verður hún áfram í hlutverki aukaleikarans og utanríkisráðherrann í aðalhlutverkinu. Og jafnvel sérstaklega útnefndur aukaleikari formanns Samfylkingarinnar og helsti stuðningsmaður ESB í þeim flokki, Dagur B. Eggertsson, fær aukið vægi og gæti hafið undirbúning að frekari vegtyllu á kostnað formannsins.
Það getur þess vegna meira en verið að umrót í íslenskum stjórnmálum fylgi í kjölfar kosningarinnar í ágúst, hvernig sem hún fer.“
Úr Reykjavíkurbréfi sunnudagsblaðs Moggans.