- Advertisement -

Finnst orkupakkinn vera fínt mál

„Ég tala mjög skýrt gagnvart mínu baklandi í mínum flokki.“

„Það er ekki nóg með að ég vilji ekki gangast við króganum, ég er bara samþykk þessu máli. Mér finnst þetta efnislega gott mál. Því fylgja breytingar sem bæta hag neytenda, auka gagnsæi og upplýsingagjöf fyrirtækja sem eru upp til hópa í einokunarstöðu. Það eykur eftirlitsheimildir Orkustofnunar,“ sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins og ráðherra í ræðustól Alþingis.

„Mér finnst þetta fínt mál og gengst við því,“ áréttaði hún. „Ég vil klára það, ekki af því að maður er kominn í einhverja klemmu með ferli sem hefur átt sér stað undanfarin tíu ár, sem er samt hluti af samhengi málsins. Það er hluti af stóru myndinni. Það er ástæðan fyrir því að við erum með þessa vinnu, Evrópureglugerðir sem koma hingað inn í landsrétt. Það er ákveðið ferli á því. Samningar skulu standa. Það er líka hluti af því.“

Síðan sagði Þórdís Kolbrún: „Það er ekki þar með sagt að ég hafi farið í pólitík til að innleiða þriðja orkupakkann. En ég hef vandað mig í þessu máli. Ég hef kynnt mér það og ég er samþykk því. Samningar skulu standa. Þetta er hluti af alþjóðasamstarfi.“ „Ég veit hvar ég stend þar. Ég tala mjög skýrt gagnvart mínu baklandi í mínum flokki.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: