
Sigurjón Magnús Egilsson:
Lilju bíða verkefni og það mikil. Framsóknarflokkurinn er ekki á góðum stað. Óðum styttist í byggðakosningarnar og Framsókn má ekki við einu högginu enn.
Framsóknarflokkurinn: Lilja Dögg Alfresdóttir hefur látið til sín taka frá því hún var kjörin formaður Framsóknarflokksins. Sem kunnugt er háði hún kosningabaráttu til formannsins gegn Ingibjörgu Isaksen, þá þingflokksformanni Framsóknar:
Lilja sigraði og eitt af hennar fyrstu verkum var að taka þingflokksformennskuna af Ingibjörgu og gerði Stefán Vagn Stefánssson, nýkjörinn varaformann, að þingflokksformanni. Ætla má að þessar breytingar séu umdeildar.
Ingibjörg er á öðru kjörtímabili sínu á Alþingi. Híun hefur til þessa verið þingflokksformaður Framsóknar. Hún skrifaði eftirfarandi í gær:
„Í dag lagði nýr formaður Framsóknar til breytingar á skipan þingflokks Framsóknar þar sem nýr þingflokksformaður mun taka við því hlutverki sem ég hef gegnt frá árinu 2021.
Það hefur verið mér mikill heiður að leiða þingflokk Framsóknar á þessum árum. Starfið hefur verið krefjandi en um leið afar lærdómsríkt og ég er þakklát fyrir það traust sem mér var sýnt þegar mér var falið þetta mikilvæga hlutverk af fyrrverandi formanni, með stuðningi þingflokksins.
Á þessum tíma hef ég öðlast dýrmæta reynslu af störfum Alþingis og átt gott samstarf við þingflokksformenn annarra flokka. Ég vil einnig þakka starfsfólki Alþingis sérstaklega fyrir afar gott samstarf. Þar starfar faglegt og öflugt fólk sem alltaf hefur verið gott að leita til og vinna með í daglegum störfum.
Það sem stendur þó sérstaklega upp úr er samstarfið við grasrót Framsóknar um allt land. Fyrir mér hefur alltaf skipt máli að tengslin milli þingflokksins og fólksins í flokknum séu sterk. Í þeim anda lögðum við til að halda reglulega fjarfundi með grasrótinni um störf þingsins, vettvang sem hefur mælst vel fyrir og skapað gott samtal um þingstörfin og þau mál sem þar eru til umfjöllunar.
Ég geng stolt frá borði, reynslunni ríkari og þakklát fyrir samstarfið við allt það góða fólk sem ég hef kynnst á þessari leið.
Nýrri stjórn þingflokksins óska ég góðs gengis og vona að þeim ásamt nýrri forystu flokksins takist vel að byggja upp fylgi við flokkinn.
Stjórnmál snúast að lokum um að halda áfram að vinna að þeim verkefnum sem skipta fólkið í landinu máli og það mun ég áfram gera.
Takk fyrir mig!“
Kurteisislegt bréf frá Ingibjörgu. Ef ekki kraumar undir niðri nú þegar, þá á það eftir að gerast. Lilju bíða verkefni og það mikil. Framsóknarflokkurinn er ekki á góðum stað. Óðum styttist í byggðakosningarnar og Framsókn má ekki við einu högginu enn.
Það er ekki alltaf nóg að ýta keppinaut til hliðar. Allt eins má búast við að Lilja þurfi upp brattari brekku en ella.