- Advertisement -

Fyrir Bjarna og vini hans er kórónavírusinn himnasending

Verkalýðshreyfingin á að fara í klára afgerandi andstöðu gegn þessum ráðagerðum.

Það er komið að því að almannasamtök og stjórnarandstaða lýsi yfir klárri andstöðu við efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar. Það er sjálfsagt að sýna samstöðu með aðgerðum sóttvarnaryfirvalda, gagnvart sjúkdómi sem leggst harðast á þau sem eru veik fyrir og gömul. En í grunninn eru þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar ekkert annað en stórkostlegur og eftirlitslaus fjáraustur úr almannasjóðum til fyrirtækja- og fjármagnseigenda. Og hver borgar?

Miðað við óbreytta ríkisfjármálastefnu mun 200-300 milljarða króna gat á ríkissjóði verða fyllt upp með skattahækkunum á launafólk, niðurbroti bótakerfa, skerðingu á opinberri þjónustu og sölu á eignum almennings; svo sem Landsvirkjun, bönkunum, vegakerfinu, flugvöllum og höfnum.

…að dæma félagsfólk sitt til þrælavinnu í verbúð hinna ríku marga næstu áratugi.

Þess vegna er Bjarni Benediktsson, efnahags- og fjármálaráðherra svona glaður. Hann er bæði sá ráðherra sem í raun fer einn með þessar aðgerðir (hann hendir 500 m.kr. í hvert ráðuneyti til að fá samþykki við aðgerðirnar í ríkisstjórn) og svo sér hann fram á að hann geti flutt óheyrilegar upphæðir frá þeim sem ekkert eða lítið eiga til þeirra sem mikið eiga og vilja sífellt eignast meira og brjóta niður skattkerfið og velferðarkerfin í leiðinni.

Fyrir Bjarna og vini hans er kórónavírusinn himnasending; hann hefur fengið alla flokka, verkalýðshreyfinguna og öll almannasamtök til að skrifa upp sósíalisma hinna ríku og svo grimma niðurskurðarstefnu gagnvart fjöldanum í kjölfarið. Verkalýðshreyfingin á að fara í klára afgerandi andstöðu gegn þessum ráðagerðum, ekki láta narra sig í að fagna smásigrum á einhverjum afskekktum hól, eins og hreyfingin sætti sig við á nýfrjálshyggjuárunum.

Krafan á að vera róttæk enduruppbygging ríkisfjármála og peningastefnu og svo aðgerðir byggðar á þeim breytingum til aðstoðar fólki, fjölskyldum og heimilum, einyrkjum og örfyrirtækjum sem ekki er hægt að gera kröfu um að verji sig með varasjóðum. Með því að samþykkja þessar ráðagerðir Bjarna og félaga væri verkalýðshreyfingin að dæma félagsfólk sitt til þrælavinnu í verbúð hinna ríku marga næstu áratugi.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: