- Advertisement -

Get ekki fallist á að verkalýðshreyfingin gefi afslátt af kjörum félagsmanna

Yfirlýsing vegna afsagnar 1. varaforseta ASÍ.

Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar:

Ég harma að Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness hafi sagt af sér sem 1. varaforseti ASÍ. Vilhjálmur hefur verið óþreytandi baráttumaður fyrir bættum hag verkafólks og heimila og öflugur bandamaður minn og Eflingar á síðustu árum. Mikill missir er að honum úr sæti varaforseta Alþýðusambandsins.

Þessu hef ég komið skýrt á framfæri á vettvangi Alþýðusambandsins.

Vegna vísunar í umræður á vettvangi samninganefndar ASÍ vil ég taka fram að ég hef fyrir hönd Eflingar hafnað því með öllu að frekari byrðum vegna Covid-19 faraldursins, umfram það sem þegar er, verði velt yfir á vinnandi fólk.

Afstaða mín er sú að ef frekari stuðningsaðgerða við vinnumarkaðinn sé þörf þá eigi ríkið að standa við fyrirheit sín um viðbótaraðgerðir, til dæmis með frekari rýmkun hlutabótaleiðinnar eða tímabundinni lækkun tryggingargjalds.

Mikið svigrúm er til staðar í fjármálum hins opinbera og núverandi aðgerðapakki enn talsvert minni en það sem sést hefur hjá nágrannalöndum. Meðan svo er get ég ekki fallist á að verkalýðshreyfingin gefi afslátt af kjörum sinna félagsmanna, allra síst láglaunafólks sem nú þegar berst í bökkum og hefur gert lengi. Ég hafna því að verkalýðshreyfingin taki frumkvæði að tillögum um slíkt. Þessu hef ég komið skýrt á framfæri á vettvangi Alþýðusambandsins.

Engum dylst að miklir gallar eru á mörgum þáttum íslenska lífeyriskerfisins, en það getur ekki þýtt að láglaunafólk sem þiggur smánarlega lágar lífeyrisgreiðslur við starfslok eigi að nota þær greiðslur til að kaupa atvinnurekendur frá kostnaði við að standa við kjarabætur sem unnust með harðri baráttu verkafólks.

Ég hvet til þess að verkalýðshreyfingin standi saman og vinni af yfirvegun við úrlausn þeirra miklu verkefna sem við okkur blasa vegna Covid-19 veirufaraldursins.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: