- Advertisement -

Hvenær gefst Sigurður Ingi upp?

Niðurlæging Framsóknarflokksins eykst frekar en hitt. Í kosningum í vetur sem leið fékk flokkurinn aðeins 7,8 prósent. Sem er versta kosning flokksins í þau 108 ár sem eru frá stofnun flokksins.

Enn hallar undan fæti. Í nýjasta þjóðarpúlsi Gallup mælist fylgi Framsóknar aðeins 6,1 prósent.

Hingað til hefur formaðurinn Sigurður Ingi Jóhannsson sagst ætla að sitja áfram sem formaður. Þrátt fyrir allt og allt virðist hann ætla að gegna formennsku í Framsókn.

Staða Framsóknar kallar á uppstokkun. Hennar getur ekki verið lengi að bíða. Vilji Sigurðar Inga er eitt og vilji flokksfélaga er annað. Með sama áframhaldandi niðurlæging mun sennilega koma að því að formanninum verði gert að segja af sér.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: