Lilja gerði strax breytingar. Setti Ingibjörgu af sem þingflokksformann og við því tók Stefán Vagn Stefánsson, sem að auki er nýkjörinn varaþingmaður.
Stjórnmál: Breytingarnar sem hafa orðið á Framsóknarflokki er um margt eftirtektarverðar. Lilja Alfreðsdóttir var kjörin formaður með ágætis meirihluta. Ingibjörg Isaksen tapaði kosningunni. Stefán Vagn Stefánsson var kjörinn varaformaður.
Frá flokksþinginu hefur, eftir því sem ég best veit, Sigurður Ingi Jóhannsson, fyrrverandi formaður, ekki mætt til þingstarfa, síðan hann lét af störfum formanns. Jóhann Friðrik Friðriksson varaþingmaður hefur leyst formanninn fyrrverandi af í þinginu.
Traust hefur verið milli Sigurðar Inga og Ingibjargar. Sem dæmi hafði Ingibjörg verið þingflokksformaður frá því hún var kjörin þingmaður. Lilja gerði strax breytingar. Setti Ingibjörgu af sem þingflokksformann og við því tók Stefán Vagn Stefánsson, sem að auki er nýkjörinn varaþingmaður.
Í fljótu bragði virðist sem staða Ingibjargar hafi verið trygg. Hún leiddi lista flokksins í Norðausturkjördæmi. Framsókn fékk tvo þingmenn í kjördæmi Ingibjargar. Hinn er Þórarinn Ingi Pétursson, sem nú er varaformaður þingflokksins.
Staða Ingibjargar var ekki og er ekki eins sterk og ætla má. Fylgi Framsóknar í Norðausturkjördæmi minnkaði meira en í öðrum kjördæmum í síðustu kosningum.
Já, hvað verður um Sigurð Inga? Hann hlýtur að hætta. Miðjan sendi honum spurningar þar um, en hann hefur engu svarað. Mæti hann á þingflokksfund mæta honum miklar breytingar.
Niðurstaðan er sú, að hann hljóti að hætta þingmennsku.