- Advertisement -

Hversu djúpt er á botn Framsóknar?

Sigurjón Magnús Egilsson:

Einar Þorsteinsson ætti að hætta sem borgarfulltrúi. Eins ætti Sigurður Ingi að hætta sem formaður. Það kann að verða sárt fyrir þá að viðurkenna eigin vanmátt. Einkum þó fyrir Sigurð Inga.

Enn og aftur fær Framsókn skell. Nú er það Gallupkönnun um fylgi flokka í borgarstjórn. Framsókn var sigurvegari síðustu borgarstjórnarkosninga. Fékk fjóra borgarfullrúa og borgarstjórastólinn í framhaldi.

Fylgið týndist af Framsókn hægt og bítandi. Einar Þorsteinsson sagði af sér sem borgarstjóri. Allt kom fyrir ekki. Áfram hrundi fylgið af Framsókn. Þetta er alvarlegt mál. Framsókn er elst allra flokka, var stofnað 1917 og hefur aldrei áður þurft að þola aðra eins niðiurlægingu og nú. Aldrei.

Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn? Er kannski pólitískt hlutverk Framsóknar búið? Horfið? Þá er fátt að gera annað en reyna af fremsta megni að breyta til. Kannki væri vit í að leita aftur til samþykkta flokksþingsins frá 2009 þegar samþykkt var að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Það er sama flokksþing og Sigmundur Davíð var kjörinn formaður Framsóknar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Einar Þorsteinsson ætti að hætta sem borgarfulltrúi. Eins ætti Sigurður Ingi að hætta sem formaður. Það kann að verða sárt fyrir þá að viðurkenna eigin vanmátt. Einkum þó fyrir Sigurð Inga. Mann sem eitt sinn var forsætisráðherra. Fékk embættið reyndar ódýrt. Sigmundur Davíð varð að segja af sér og sem varaformaður fékk Sigurður Ingi forsætisráðuneytið.

Nú er staðan alvarleg. Framsókn hangir á hálmstrái sem er við það að slitna. Þetta kann að verða spurningar upp á líf og dauða hjá elsta stjórnmálaflokki þjóðarinnar, Framsóknarflokki sem var stofnaður árið 1917. Tímabært er fyrir Einar borgarfulltrúa að bretta upp ermarnar.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: