- Advertisement -

Í forsetaframboð gegn „valdabandalagi“

Sem forseti ASÍ hef ég áhuga á að að leiða fólk saman og starfa með öllum aðildarfélögum innan hreyfingarinnar.

Ólöf Helga Adolfsdóttir skrifar: Yfirlýsing um framboð:

Alþýðusamband Íslands er eitt það dýrmætasta sem launafólk á Íslandi á. Að setja það baráttulaust í hendur fólks sem lætur eigin valdahagsmuni ganga fyrir hagsmunum almenns félagsfólks væri ámælisvert. Ég hef því tekið þá ákvörðun að bjóða mig fram til forseta ASÍ á þingi sambandsins sem hefst nú á mánudag.

Ég hef kynnst af eigin raun hversu mikilvægt það er fyrir vinnandi fólk að eiga skjól í sínu stéttarfélagi. En ég hef líka séð hveru illa það fer með fólk að eiga ekki slíkt skjól. Fyrir rúmu ári síðan var mér sagt upp störfum sem hlaðmaður á Reykjavíkurflugvelli af þeirri ástæðu einni að ég vildi sinna starfi mínu sem trúnaðarmaður á vinnustaðnum. Stéttarfélag mitt, Efling, tók málið föstum tökum og höfðaði mál fyrir Félagsdómi. Samhliða var ráðiðst í fjölmiðlaherferð og ég – sem hafði aldrei birst í fjölmiðlum nema sem barn að halda tombólu – var til viðtals í öllum helstu miðlum landsins. Formaður og framkvæmdastjóri Eflingar, Sólveig Anna Jónsdóttir og Viðar Þorsteinsson, stilltu sér upp mér við hlið. Framleidd voru myndbönd, skrifaðar fréttir og greinar og fólk kallað saman til mótmæla.

En nú brá svo við að formaðurinn kom hvergi nærri og þagði þunnu hljóði.

Þegar aðalmeðferð fór fram í máli mínu fyrir Félagsdómi nú nýverið fylgdi lögmaður félagsins málinu eftir. En nú brá svo við að formaðurinn kom hvergi nærri og þagði þunnu hljóði. Engin frétt var birt á síðu Eflingar, hvað þá myndefni og ekki var kallað til mótmæla eða sett fram ákall um samstöðu. Ástæða þessara sinnaskipta var einfaldlega sú að ég hafði hreyft öðrum skoðunum á starfi og framtíð Eflingar en Sólveig Anna Jónsdóttir. Ég gat því ekki annað en dregið þann lærdóm að opinber stuðningur félagsins míns væri háður því að það þjónaði pólitískum hagsmunum formannsins. Þetta var ekki aðeins sárt og óþægilegt fyrir mig, heldur ógnar svona framkoma réttindum og hagsmunum allra þeirra tugþúsunda einstaklinga sem eru félagar í Eflingu.

Nú vill Sólveig Anna, í valdabandalagi við Ragnar Þór Ingólfsson og Vilhjálm Birgisson, taka yfir Alþýðusamband Íslands. Í gegnum hópuppsagnir á skrifstofu Eflingar fórnuðu þau trúverðugleika verkalýðshreyfingarinnar og félagsfólki fyrir eigin valdahagsmuni. Óljóst er hvað þríeykið vill með sambandið. En það hefur komið skýrt fram að þau munu ekki hafa rúm fyrir aðrar skoðanir en sínar eigin og vilja stjórna í krafti meirihlutaræðis. Allir sem mótmæla þeim fá yfir sig fúkyrðaflaum – og þegar önnur sjónarmið eru sett fram er þeim mætt með hótunum og offorsi.

Ég hef verið virk í verkalýðsbaráttunni síðastliðin ár og setið í stjórn Eflingar frá árinu 2019. Ég hef unnið láglaunastörf alla mína starfsævi, að frátöldum þeim mánuðum sem ég gegndi embætti varaformanns Eflingar. Sem forseti ASÍ hef ég áhuga á að að leiða fólk saman og starfa með öllum aðildarfélögum innan hreyfingarinnar. Ég vil leggja mitt af mörkum til að hreyfingin þjóni áfram öllu sínu félagsfólki, óháð pólitískum skoðunum þess. Ég trúi að lýðræðið snúst ekki aðeins um atkvæðagreiðslu eða hausatalningu, heldur ferli og umræðu þar sem öll sjónarmið skipta máli. Ég trúi á ASÍ sem breiðfylkingu.

Framundan er þungur vetur kjaraviðræðna þar sem við verðum að snúa bökum saman og ná fram raunverulegum kjarabótum. Ég tel mikilvægt að verkalýðshreyfingin sé bæði sameinuð og sterk og býð fram mína krafta til að vinna að því.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: