Umræðan/ff7.is: Donald Trump Bandaríkjaforseti kynnti í gær tillögur sínar að stofnun sérstaks friðarráðs sem hann ætlar að veita forystu svo lengi sem hann kýs. Formennska í ráðinu er því ekki bundin við hver er forseti Bandaríkjanna miðað við þær fréttir sem komnar eru af þessum áformum. Trump hefur boðið forseta Rússlands sæti í friðarráðinu og þar verða einnig sæti fyrir 48 aðrar þjóðir.
Ísland er ekki þar á meðal samkvæmt lista sem Bloomberg fréttaveitan hefur birt og sjá má hér fyrir neðan.
Þessu friðarráði er lýst í bandarískum fjölmiðlum sem valkosti við Sameinuðu þjóðirnar. Áformin eru umdeild þar sem lönd þyrftu að greiða 1 milljarð dollara fyrir fasta aðild og Donald Trump, í krafti stöðu sinnar sem formaður, hefði neitunarvald. Forseti Frakklands gaf strax út að hann myndi ekki þiggja sæti í ráðinu og í kjölfarið hótaði Trump 200 prósenta tolli á kampavín.