- Advertisement -

Kristján Þór verði sviptur ráðherradómi

Strandveiðifélagið Krókur hefur sent forystumönnum ríkisstjórnarflokkanna bréf þar sem ítrekuð er krafa félagsins að Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra verði leystur frá störfum.

Í bréfi Króks segir m.a.: 

„Síðan þá hefur Kristján Þór aðeins áunnið sér frekara vantraust okkar, með seinagangi og aðgerðarleysi til að efla strandveiðiheimildir í tæka tíð, svo að bregðast megi við núverandi ástandi með tilslökunum.  Stöðvun grásleppuveiða þann 3. maí s.l. sýnir vel hug ráðherra.  Hann hefði getað fengið Fiskistofu til að stjórna, eða stuðst við tölur þaðan, þar sem sést jafnóðum hve mikið er komið á land.  Það hefði verið hægt að stöðva fyrstu bátana mikið fyrr, jafnvel við 30 daga?  Þeir sem fengu flesta daga fengu 44, aðrir örfáa og allt niður í núll.  Á innanverðum Breiðafirði eru nú gefnir allt að 15 dagar (sérhólf, eftir 20. maí).  Þetta er hneyksli í aðgerðarstjórnun.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: