- Advertisement -

„Menn viti ekki neitt í sinn haus“

„Þessi yfirlýsing, þessi undirritun borgarstjóra, er því í hæsta máta sýndarmennska en bersýnilega fáránleg í ljósi allra aðstæðna.“

Sigríður Á. Andersen.

Alþingi: Sigríður Á. Andersen var ekki sátt með að borgarstjórinn í Reykjavík hafi skrifað undir loftlagssamning Sameinuðu þjóðanna:

„Það berast fréttir af því að Reykjavíkurborg hafi svarað svokölluðu alþjóðlegu kalli um aðgerðir til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og borgarstjóri hafi af þessu tilefni skrifað undir samning þessa efnis. Í yfirlýsingum borgarstjóra vegna samningsins kemur fram að stuðningur við þetta samkomulag sé í samræmi við loftslagsmarkmið Reykjavíkurborgar og þar á meðal markmið um kolefnishlutleysi árið 2030 og að þetta eigi að byggja á forystu okkar í hreinni orku. Það er fjallað um það hér líka að hér sé verið að að skrifa undir samning sem sé til fyllingar loftslagssamningi Sameinuðu þjóðanna og margnefndum Parísarsáttmála. Þetta skrifaði Reykjavíkurborg undir í þessari viku og gefur út fréttatilkynningu,“ sagði Sigríður Á. Andersen á þingi.

Og hélt áfram: „Það virðist vera að borgarstjóra Reykjavíkurborgar sé algerlega ókunnugt um alla þá umræðu sem farið hefur fram á undanförnum misserum, ekki bara í þessum þingsal heldur víða um heim, um skuldbindingar Parísarsáttmálans. Hér hefur meira að segja komið fram af hálfu stjórnvalda, ríkisstjórnar og umhverfisráðherra, að menn viti ekki neitt í sinn haus um hverjar skuldbindingar Íslendinga séu þegar kemur að Parísarsáttmálanum. Það liggur hreinlega ekki fyrir. En allt að einu, Reykjavíkurborg veður í þetta og er það auðvitað heilmikil sýndarmennska að þessu leyti. Á sama tíma og borgarstjóri talar fyrir því að menn dragi hér úr notkun jarðefnaeldsneytis og nýti þessa innlendu orkugjafa okkar hefur borgin t.d. ekkert gert í því að auðvelda Reykvíkingum sem eiga og vilja aka um á rafmagnsbílum. Hér hefur markvisst verið farið í það að draga úr bílastæðum sem er forsenda þess að menn geti hlaðið þessa rafmagnsbíla hér. Helmingur Reykvíkinga býr ekki einu sinni við nægt rafmagn í götu heimilis síns til að geta átt slíka bíla. Þessi yfirlýsing, þessi undirritun borgarstjóra, er því í hæsta máta sýndarmennska en bersýnilega fáránleg í ljósi allra aðstæðna.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: