Gunnar Smári skrifar:
![](https://www.midjan.is/wp-content/uploads/2021/03/þs.jpg)
Samfylkingin er um margt fyndinn flokkur. Þau svara kröfum sósíalista um tengsl verkalýðshreyfingarinnar inn á þing með því að sækja sér fráfarandi formann BHM. Eins og það sé vandinn, að á þingi vanti skilning á kjörum háskólafólks (95% þingheims er þannig fólk). Fólkið sem byggði upp forvera Samfylkingarinnar upp úr verkalýðsbaráttu síðustu aldar hlýtur að snúa sér við í gröfinni alla daga og allar nætur.