- Advertisement -

Samstaðan rofin / átök framundan

Vinnumarkaður Ljóst er að hækkanir launa hjá einstaka stéttum hafa höggið skarð í raðir launamanna og þau félög sem samþykktu 2,8 prósenta launahækkun, með vissu um að samningaviðræður hæfust strax, hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum.

„Ég hef ekki fengið neinar samningaviðræður við SA. Reyndar hitti ég þá í kurteisisspjalli fyrir hálfum mánuði. Við vorum tilbúnir í þessa vinnu en okkar viðsemjendur hafa ekki viljað tala við okkur,“ sagði formaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna í samtali við Miðjuna.

„Í stað þess að það ríki vopnahlé erum við á vígvelli,“ segir Guðmundur Þ. Ragnarsson. Guðmundur segir að það launafólk sem samdi á undan, til að mynda kennurum, muni ekki, þegar það kemst að borðinu, sættast á minni hækkanir en aðrir hafa fengið.

Er þá hægt að segja að sú tilraun sem var gerð, hún hafi mistekist?

. „Við hjá VM höfum sagt það skýrt að við tökum ekki þátt í samræmdri launastefnu í næstu kjarasamningum.“
. „Við hjá VM höfum sagt það skýrt að við tökum ekki þátt í samræmdri launastefnu í næstu kjarasamningum.“

„Hún er gjörsamlega farin. Það þarf ekki að ræða það meir.“ Aðrir forystumenn hafa talað á sama veg að undanförnu, einsog sést hefur á fréttum liðinna daga.

Guðmundur reiknar með átökum á vinnumarkaði næsta vetur. „Við hjá VM höfum sagt það skýrt að við tökum ekki þátt í samræmdri launastefnu í næstu kjarasamningum. Við viljum semja við okkar viðsemjendur, í okkar atvinnugreinum til að ná fram ýmsum leiðréttingum. Við ætlum að gera hvað við getum til að þvinga okkar viðsemjendur í vitræna umræðu um aukna framlegð í þeim greinum þar sem okkar félagsmenn starfa.“

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: