- Advertisement -

Sigmundur Davíð notaði sama Hagkaupsplastpokann í rúmt ár

Mynd sem fylgdi skrifum Sigmundar Davíðs. Þarna er hann ungur og með plastpoka.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, skrifar merkan pistil á Facebook:

„Nýja „frjálslyndið” heldur áfram. Nú er búið að banna plastpoka og fyrirtæki sem áttu birgðir af því sem fyrir áramót þótti sjálfsagður hlutur þurfa nú að farga pokunum eða láta þá hverfa með einhverjum hætti. Þetta mun gert til að draga úr plastmengun í hafi.

Ég notaði jafnan plastpoka sem skólatösku á háskólaárunum og var stundum hafður að háði og spotti fyrir vikið. Það var vegna þess að pokarnir þóttu hallærislegir, ekki vegna þess að ég væri grunaður um að ætla að henda þeim í sjóinn. En þeir voru praktískir.

Venjulegur plastpoki úr verslun vegur um 5,5 grömm en getur hæglega borið meira en 10 kíló. Framleiðsla bómullarpoka losar hátt í 200 sinnum meira af gróðurhúsalofttegundum og þá er gert ráð fyrir að plastpokinn sé bara notaður einu sinni.

Ég átti Hagkaupspoka sem nýttist mér í rúmlega ár.

Er mikið um að Íslendingar hendi plastpokum í sjóinn? Varla. Auk þess halda pokarnir utan um sorp og koma í veg fyrir að það fjúki í sjóinn.

Má ekki fara að líta á heildarmyndinna í umhverfismálum?


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: