- Advertisement -

Sjónhverfingarnar mistókust

Karl Gauti Hjaltason ásamt flokksbróður sínum, Ólafi Ísleiffssyni.

„Stjórnvöld kynntu með trumbuslætti auknar opinberar framkvæmdir í upphafi árs 2019 þegar ljóst var að fjárfestingar atvinnulífsins voru að dragast stórlega saman,“ sagði Karl Gauti Hjaltason Miðflokki.

„Í upphafi veirufaraldursins voru trommurnar aftur teknar fram og takturinn enn sleginn um auknar opinberar framkvæmdir. Áhorfandi beindi athyglinni að trumbuslættinum, enda var til þess ætlast. Og hver er raunin? Samkvæmt mati Hagstofu Íslands drógust opinberar framkvæmdir á árinu 2019 saman um tæp 11%. Á síðasta ári, 2020, drógust opinberar framkvæmdir aftur saman, nú um 9,3%. Auðvitað eru þessar staðreyndir afleitar fyrir ríkisstjórnina sem hefur þarna orðið uppvís að því að sjónhverfingin mistókst. Yfirlýsingar ráðamanna á síðustu árum um aukin útgjöld til fjárfestinga í innviðum, vegakerfinu, höfnum, flugvöllum, eru orðin tóm, blekking. Aukningin er í raun samdráttur. En verra er að þessi samdráttur hefur þau áhrif að enn meiri þörf er á innspýtingu til innviðauppbyggingar á næstu árum þegar við þurfum jafnframt að takast á við afleiðingar veirufaraldursins,“ sagði hann.

„Það er kominn tími til að leggja töfrabrögðin til hliðar og fara í raunverulegar aðgerðir til að skapa atvinnu.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: