- Advertisement -

Skapa álver gjaldeyri, eða ekki

Vilhjálmur Birgisson og Ólafur Margeirsson,

Vilhjálmur Birgisson og Ólafur Margeirsson hagfræðingur eru ekki sammála um ágæti álvera:

Vilhjálmur Birgisson: Hvernig eigum við sem þjóð að reka, löggæsluna, vegakerfið, heilbrigðis-, mennta- og almannatryggingakerfið og svona mætti lengi telja, ef ekki má vera með fiskeldi, veiða hval og loka eigi orkusæknum iðnaði á Íslandi.

Mikilvægt að allir átti sig á því að við sem þjóð verðum að hafa öflug gjaldeyrisskapandi fyrirtæki sem skapa vel launuð störf til að hægt sé að halda okkar ágæta samfélagi gangandi.

Ólafur Margeirsson: Örstutt komment: „gjaldeyrisskapandi fyrirtæki“ á varla við í tilviki álvera á Íslandi þar sem þau eru í eigu erlendra aðila, sem vitanlega flytja hagnaðinn af rekstri þeirra úr landi. Sá flutningur hagnaðar úr landi er svo vitanlega gerður enn meiri en í mörgum öðrum löndum því álverunum er leyft að nota þunna eiginfjármögnun (atriði sem Pétur heitinn Blöndal barðist réttilega gegn) með tilheyrandi lágri skattbyrði.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: