- Advertisement -

Skemmd­ar­verka­stjórn­ar­and­stöðufræði Davíðs

Stjórnarandstaða er sem klapplið ríkisstjórnarinnar.

Stjórnarandstaða á Alþingi er sem klapplið ríkisstjórnarinnar. Björn Leví Gunnarsson undirstrikar þessa kenningu í Moggagrein í dag. Hann rifjar upp öfga Davíðs Oddssonar, frá því hann var í minnihluta í borgarstjórn, sér og sínum til réttlætingar.

Davíð sagði þá: „Ég gerði öll mál tor­tryggi­leg og fylgdi þeirri reglu veiðimanns­ins að maður má ekki ein­ung­is kasta flugu sem manni finnst fal­leg því að maður veit aldrei hvaða flugu lax­inn tek­ur. Ég tók því upp öll mál, jafn­vel þó að ég væri í hjarta mínu samþykk­ur þeim, og hjólaði í þau því að ég leit á stjórn­ar­and­stöðu sem stjórn­ar­and­stöðu.“

Auðvitað var stefna Davíðs full öfgakennd. „Mesta freist­ing­in til þess að mis­nota vald er nefni­lega í neyðarástandi. Þá er mjög auðvelt að rétt­læta allt, hvort sem rétt­læt­ing­in stenst skoðun eða ekki. Neyðin ger­ir ábyrgð stjórn­valda vegna aðgerða mun meiri sem og gagn­rýni stjórn­ar­and­stöðu. Að beita aðferðafræðinni „að hjóla í öll mál“, sama hvað, er því sér­stak­lega óheiðarleg póli­tík þegar um neyðarástand er að ræða,“ segir Björn Leví og sest mæðulegur  á bekk klappliðsins.

Hann færir rök fyrir afstöðu sinni: „Mig lang­ar því að segja það eins skýrt og greini­lega og ég get. Þótt ég gæti sagt eitt og annað um aðgerðir stjórn­valda á und­an­förn­um dög­um þá hafa þær í heild­ina verið ágæt­ar. Það er alltaf hægt að segja að það þurfi að gera meira, en þess hátt­ar gagn­rýni er ná­kvæm­lega sú skemmd­ar­verka­stjórn­ar­and­stöðufræði sem Davíð Odds­son stundaði. Skemmd­ar­verkapóli­tík sem gref­ur und­an al­mennu trausti í sam­fé­lag­inu og frí­ar vald­hafa frá ábyrgð í al­var­leg­um mál­um.“

Er alltaf hægt að segja að þurfi meira? Nú, hvernig væri þá að nefna dæmi um það? Einmitt í ástandi eins og nú má enginn missa sig í aðdáun á ráðandi afli. Ekki einn einast og alls ekki þingmenn. Núverandi ríkisstjórn er upptekin við, og hefur verið, að breikka bilið sem mestu hún getur. Bilið milli þeirra sem mest hafa og þeirra sem minnst hafa. Þá er vont að hafa liðónýta stjórnarandstöðu.

Ekki er von á góðu.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: