- Advertisement -

Skref að nýju loftslagssamkomulagi

Á fundi  Loftslagssamnings S.Þ í Lima aðfararnótt sunnudags um upplegg að nýju framtíðarsamkomulagi í loftslagsmálum. Samkvæmt ákvörðuninni eiga ríki að setja sér markmið um minnkun losunar á gróðurhúsalofttegundum og tilkynna til skrifstofu Loftslagssamningsins á árinu 2015. Erfitt var að ganga frá tillögunum.

Sett verður upp ferli innan samningsins til að meta innsend markmið ríkja og tryggja eftir föngum að þau séu skýr og samanburðarhæf. Stefnt hefur verið í nokkurn tíma að nýju framtíðarsamkomulagi í loftslagsmálum, sem á að samþykkja á fundi í París í lok 2015, og taka á gildi 2020. Í Lima var gengið frá texta sem „innleggi“ í væntanlegt Parísarsamkomulag, en formleg drög að samningstextanum sjálfum eiga að liggja fyrir í maí 2015.

Illa gekk að ná samkomulagi um meginákvörðun Lima-fundarins og dróst fundurinn mjög á langinn. Drögum að ákvörðun sem lögð voru fram eftir áætluð fundarlok á föstudag var hafnað af mörgum ríkjum. Forseti aðildarríkjaþingsins, umhverfisráðherra Perú, lagði þá fram nýjan texta eftir samráð við helstu aðila, sem var samþykktur á endanum.

Ákvörðunin í Lima er grunnur fyrir lokalotu samningaviðræðna 2015, sem ljúka á með nýju framtíðarsamkomulagi í París. Þar eiga öll ríki að taka á sig einhverjar skuldbindingar um takmörkun losunar o.fl., en þó misstrangar eftir efnum og aðstæðum. Nú eru í gildi takmarkanir á losun innan Kýótó-bókunarinnar fram til 2020, en hún tekur þó einungis á um 15% heimslosunar koldíoxíðs og annarra gróðurhúsalofttegunda. Einungis Evrópuríki og Ástralía hafa tekið á sig skuldbindingar á 2. tímabili Kýótó, 2013-2020. Allir helstu losendur eiga hins vegar að setja sér markmið í væntanlegu Parísarsamkomulagi og munar þar mest um Kína og Bandaríkin, en einnig stór og vaxandi þróunarríki eins og Indland og Brasilíu og ríki sem hafa sagt sig frá Kýótó-skuldbindingum eins og Japan og Rússland. Ljóst er hins vegar að þau markmið um losun sem stefnt er að í Parísarsamkomulaginu verða lagalega veikari en í Kýótó-bókuninni og þau verða sett af ríkjunum sjálfum en ekki háð samþykki ríkja Loftslagssamningsins.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ýmsar aðrar ákvarðanir voru teknar á Lima-fundinum, m.a. um fjármögnun aðgerða gegn loftslagsbreytingum. Mörg ríki, þ.á m. Ísland, greindu frá framlögum í Græna loftslagssjóðinn, sem nú nema samtals yfir 10 milljörðum bandaríkjadollara, sem þýðir að sjóðurinn getur tekið til starfa. Ísland lýsti yfir stuðningi við væntanlegt Parísarsamkomulag á fundinum og áhyggjum af áhrifum loftslagsbreytinga, m.a. á lífríki hafsins.

Sjá frétt á síðu Umhverfisráðuneytis


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: