- Advertisement -

Stjórnarsinnar vilja stöðva málþófið

Þingforseti, sem nú er Þórunn Sveinbjarnardóttir Samfylkingu, getur stöðvað málþófi. Hér að neðan er mynd af 71.gr þingskaparlaga. Meðal stjórnarþingmanna er vaxandi vilji til að Þórunn stöðvi málþófið. Grípi í neyðarhemilinn.

Meðal þingmanna stjórnarandstöðunnar er eindreginn vilji til að slaka hvergi á málþófinu.

Nú er að sjá hvernig þetta fer. Eitt er víst að langt er á milli fylkinganna.

Fundur hófst í Alþingi klukkan 11:00. Til þessa hefur einungis verið rætt um fundarstjórn forseta. Aðeins þrír stjórnarþingmenn hafa tekið þátt í umræðunni; Sigurjón Þórðarson, Guðmundur Ari Sigurjónsson og Sigmar Guðmundsson.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: