- Advertisement -

„Þá vitum við það“

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálstæðisflokksins, skrifaði:

„Í athyglisverðu viðtali við utanríkisráðherra í gærkvöldi gat hún ekki sagt að varanleg yfirráð Íslendinga yfir fiskveiðiauðlindinni væru ófrávíkjanlegt skilyrði ríkisstjórnarinnar. Ekki einu sinni þegar hún var spurð beint og ítrekað hvort lausnin þyrfti að vera varanleg eða ævarandi.

Í staðinn var talað um „full forráð“ og að verja hagsmuni okkar „til skemmri og lengri tíma“. En ekki varanlega.

Þessu hef ég margoft kallað eftir.

Það er alveg skýrt að ríkisstjórnin vill fá umboð þjóðarinnar fyrst og ákveða síðan endanleg samningsmarkmið. Það kemur raunar skýrt fram í tillögu utanríkisráðherra um atkvæðagreiðsluna. Þar segir að ef þjóðin samþykki framhald viðræðna verði þá unnin uppfærð samningsmarkmið og þau síðar lögð fyrir Alþingi.

Það er því rangt að halda því fram að samningsmarkmið ríkisstjórnarinnar liggi þegar fyrir.

Það er verið að biðja þjóðina um umboð til að hefja að nýju aðildarferlið sem hófst með umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu árið 2009.

Ég treysti þjóðinni fullkomlega til að taka þá ákvörðun. Þjóðin á rétt á að vita áður en hún veitir umboðið hvort full og varanleg yfirráð Íslendinga yfir auðlindum þjóðarinnar séu ófrávíkjanlegt skilyrði.

Í gærkvöldi fengum við svarið að svo er ekki.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: