- Advertisement -

Við hljótum að geta gert betur

Alþingi:

„Í dag er alþjóðadagur fatlaðra. Fatlaðir einstaklingar þekkja það sennilega betur en flestir hvernig það er að þurfa að berjast við kerfið til að fá aðgang að þeim réttindum sem velferðarlandið Ísland hefur lofað þeim. Það hefur verið breið sátt í gegnum áratugina að við viljum greiða til samneyslunnar fyrir kerfi sem grípur þá sem höllustum fæti standa hverju sinni og misnotkun á kerfinu er ekki í boði,“ sagði Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir á Alþingi í dag.

Nú fyrir skemmstu var viðtal við mann að nafni Axel Þór Eysteinsson sem benti á margar brotalamir kerfisins þegar kemur að þjónustu við fatlað fólk, eins og þá staðreynd að dóttir þeirra hjóna sem er með Down’s syndrome þurfi á nokkurra ára fresti að mæta til kerfisins og fara yfir það að hún sé enn með Down’s syndrome. Við hljótum að geta gert betur. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks var lögfestur á Alþingi fyrir skemmstu. Þingmenn Miðflokksins bentu á að það þyrfti að vinna málið betur og fjármagna samninginn áður en fötluðu fólki væru enn eina ferðina gefin innistæðulaus loforð. Hvað gerist? Fjöldi fregna berst strax um að fatlaðir fái ekki lögbundna þjónustu. Hér er ríkisstjórn sem er að auka útgjöld yfir 140 milljarða milli ára, ríkisstjórn sem getur endalaust reddað húsnæði og annarri þjónustu fyrir þá sem hingað koma í leit að hæli en í fjárlögum ríkisstjórnarinnar sem við ræðum hér á eftir ákveður hún að setja 0 kr. til að sveitarfélög geti staðið við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Frú forseti. Þetta er til skammar gagnvart þeim sem minnst mega sín. Skerum nú niður fituna og gæluverkefnin og látum velferðarkerfið virka fyrir þá sem þurfa mest á því að halda.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: