- Advertisement -

Við styðjum nú með einum eða öðrum hætti u.þ.b. við allar atvinnugreinar í landinu

Alþingi:

„Þessi verkefni eru af öllum stærðum og gerðum og það er ekki hægt að ætlast til þess að öll verkefni verði þannig að þau slái í gegn og raki inn áhorfi. Það þarf líka að vera svigrúm fyrir minni og tilraunakenndari kvikmyndagerð, einfaldlega til þess að við eignumst listafólk og fólk sem styður það í sinni vinnu í kringum þetta,“ sagði Logi Einarsson menningarmálaráðherra meðal annars á Alþingi, þegar hann mælti fyrir frumvarpi um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.  

„Það er mikilvægt að listin hafi þetta svigrúm til þróunar og sköpunar svo það byggist upp þekking innan greinarinnar hér á landi í samræmi við upphafleg markmið laganna. Það er ekki hægt að sjá annað þegar maður skoðar sögu greinarinnar frá því að stuðningskerfið var sett á laggirnar árið 1999 en að þetta hafi algjörlega tekist. Margir hafa spurt: Eigum við ekki bara að styðja við innlendu kvikmynda- og sjónvarpsframleiðsluna? En þá segir maður á móti: Þessi stóru verkefni sem hingað hafa komið inn og skapað ótrúlega mikla og stóra veltu í hagkerfi okkar, þó að þau fyrirtækin fái eitthvað til baka, hafa ekki síst stuðlað að þeirri þekkingu sem hefur orðið til í greininni. Þau hafa einnig orðið til þess að tækjabúnaður, aðstæður, kvikmyndaver og annað hefur orðið til, þannig að það er ekkert hægt að gefa þessu 26 ára kerfi neina aðra dóma en að markmið laganna hafi sannarlega skilað árangri. Svo geta menn endalaust deilt um hvað eigi að styðja, hvað eigi að styrkja. Við styðjum nú með einum eða öðrum hætti u.þ.b. við allar atvinnugreinar í landinu og þetta er bara eitt form fyrir slíkan stuðning sem sannarlega mætir líka væntingum og óskum ungs fólks sem vill kannski síður sækja í þessar hefðbundnu greinar sem hafa gert okkur bjargálna og eru mjög mikilvægar. Þarna eru þekkingargreinar og listgreinar sem eru vinsælar hjá ungu fólki og sannarlega gaman að tónlistarmenn, myndlistarmenn og fatahönnuðir, svo maður nefni þrjár greinar sem hefðu öðrum kosti verið í basli og fengið stök verkefni, geti kannski verið að vinna á heilsársgrundvelli. Það skiptir gríðarlega miklu máli.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: