- Advertisement -

Vil ekki sjá erlendar vörur í auknu magni

Alþingi: Halla Hrund Logadóttir Framsóknarflokki svarar hér spurningum frá Ingibjörgu Davíðsdóttur Miðflokki.“

„Finnst henni boðlegt að bera það á borð í nefndaráliti meiri hlutans að það sé bara gefið fyrir fram að tollvernd á landbúnaðarvörur frá öðrum aðildarríkjum Evrópusambandsins falli niður með aðild að tollabandalagi ESB? Finnst henni slíkt boðlegt og telur hún þessari ríkisstjórn sem hér situr, þ.e. ef farið verður í þessar viðræður, er það boðlegt að leggja slíkan samning á borð fyrir íslenska þjóð?“

„Ég þakka háttvirtum þingmanni fyrir góða spurningu. Í stuttu máli er svarið:

Nei, mér finnst það ekki boðlegt. Þetta minnir aðeins á það þegar orkulöggjöfin var innleidd. Þá voru sett fram óljós skilyrði, settar fram óljósar fullyrðingar um að það yrðu ekki mikil áhrif. Síðan hafa áhrifin verið að koma í ljós í yfir áratug. Þess vegna finnst mér vera svo mikilvægt að íslenskur landbúnaður og þjóðin öll skilji hvað slík breyting getur raunverulega þýtt.

Þú þarft hvort tveggja,
það er alveg augljóst mál.

Keyrum hringinn í kringum landið. Sjáum öll ólíku búin sem eru hringinn í kringum landið og fæða þjóðina. Langar okkur til að ógna þeirri tilvist? Hver er framtíðarsýnin okkar? Er okkur sama um að það verði samþjöppun með þeim hætti að þetta verði einhver stór iðnaðarframleiðsla? Er það í takt við okkar sérstöðu? Já, og að innflutningur muni aukast margfalt samhliða? Þetta er líka spurning um hver áhrifin eru innan lands. Hver er samkeppnin utan frá?

Hér hefur verið rætt um að það sé hægt að hækka styrki til að koma til móts við þessa stöðu. En það er alveg morgunljóst í mínum huga að styrkir munu aldrei koma í staðinn fyrir tollvernd. Þú þarft hvort tveggja, það er alveg augljóst mál.

Við þurfum heilt yfir framtíðarsýn í landbúnaðarmálum. Við þurfum, eins og ég sagði áðan, að horfa á upprisu fjölskyldubúsins sem tryggir nýliðun í greininni, kynslóðaskipti o.s.frv. Það er sú framtíð sem ég vil sjá. Ég vil ekki sjá erlendar vörur í auknu magni og færri bændur sem eru kannski meira með iðnaðarframleiðslu. Það er framtíðarsýn sem mér hugnast ekki.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: