- Advertisement -

Vilja þau ríkustu borga hærri skatta?

Hrafn Magnússon skrifaði:

„Í júlí s.l. þegar Andy Burnham tók við af Keir Starner sem forsætisráðherra Bretlands birtist þessi frétt í þar lendum fjölmiðlum og reyndar víðar, þar sem beðið er um að greiða hærri skatta til samfélagsins.

Í opnu bréfi sögðu 120 efnaðir Bretar við Burnham: „Við höfum efni á þessu. Við erum ekki að tala um hærri skatta á þá sem fara til vinnu á hverjum degi til að afla sér launatekna, heldur á þá allra ríkustu sem fá tekjur sínar frá þeim auði sem þeir eiga.“

Bréfið, sem skipulagt var af stofnuninni Patriotic Millioneres, sagði að það myndi leiða til jafnari samfélags og hvatti til „dreifingar auðs og valds frá þeim allra ríkustu“.

Mér er spurn. Má vænta að Morgunblaðið birti sambærilega yfirlýsingu frá auðugum Íslendingum um ósk um að borga hærri skatta til samfélagsins, þó ekki væri til annars en bæta heilbrigðiskerfið, kjör aldraðra og öryrkja, svo nokkur dæmi séu nefnd?

Ég held því miður að bið verði á slíkri yfirlýsingu. Hvað segja annars Samtök skattgreiðenda um þessa frétt?


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: