- Advertisement -

Voru löngu farnir yfir til Miðflokksins

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir þá Ólaf Ísleifsson og Karl Gauti Hjaltason, sem reknir voru úr Flokki fólksins, hafi verið löngu komna yfir í Miðflokkinn, en þó ekki formlegum hætti. Þetta kom fram í máli Ingu Sæland formanni Flokks fólksins sem hringdi inn í símatímann á Útvarpi Sögu í morgun.

Inga sagði að þeir sem gagnrýni brottrekstur Ólafs og Karls Gauta viti ekki nema hálfa söguna; „…það var mikið búið að ganga á áður og það var mikið búið að reyna að halda þessu saman sem hefði verið besti kosturinn en þeir voru í raun bara löngu komnir yfir í Miðflokkinn, en eins og ég segi var mikið búið að vera í gangi og þingflokkurinn í rauninni orðinn óstarfhæfur vegna þess og því var þetta niðurstaðan, við erum ekkert að bera allt upp á torg sem gerist innan flokksins,“ sagði Inga. Hlusta má á símtalið við Ingu hér.

Inga segir ekki rétt að þingflokkurinn hafi verið óstarfhæfur fyrir Klaustursmálið, en hafi orðið það þegar málið varð opinbert.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: