- Advertisement -

„Þér er ekki nógu illt í skrokknum“

Alþingi:

Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður utan þingflokka, sagði:

Mynd: Jon Tyson//Unsplash.com.

„Blóð, sviti, verkur, tár. Það er það sem ég fæ að heyra hjá fólki sem er að berjast við kerfið; heilbrigðiskerfið, almannatryggingakerfið og önnur kerfi okkar, kerfi sem hafa verið byggð upp í áratugi, kerfi sem eiga að hjálpa fólki en eru því miður ekki að gera það. Það hlýtur að vera eitthvað að kerfi sem segir við einstakling: Þú ert nr. 101, nei, þú ert nr. 102 eða jafnvel nr. 103 á biðlista, en þeir ætla bara að taka 100 manns og þú átt að bíða áfram. Viðkomandi er í vinnu og heimtar að fá aðgerð. Svarið sem hann fær: Þú getur fengið meiri verkjalyf, þú getur fengið nóg af verkjalyfjum. Er eitthvað eðlilegt við það að við séum með hjúkrunarheimili þar sem vantar faglært starfsfólk og við gefum eldri borgurunum okkar geðlyf, geðrofslyf?

Er eitthvað eðlilegt við það að einstaklingur, kona sem er nýbúin að fæða barn og svo stuttu seinna ákveður hún að eignast annað barn, þá á að refsa henni fjárhagslega fyrir það. Það er eitthvað að þessu kerfi okkar og við þurfum virkilega að fara að taka á því, sérstaklega almannatryggingakerfinu og heilbrigðiskerfinu vegna þess að það er ekkert eðlilegt við það að fara til Tryggingastofnunar ríkisins og fá rangar upplýsingar og þeir eru bara hreinlega með fordóma. Það gengur ekki upp að segja við fólk: Heyrðu, þú ert ekki nógu veikur. Þú ert ekki með nóg af geðrænum vandamálum. Þér er ekki nógu illt í skrokknum. Þó að þú sért óvinnufær þá getum við ekkert fyrir þig gert.

Við verðum að breyta þessu kerfi og við verðum að breyta því innan frá. Við erum búin að vera í tvö ár, þessi ríkisstjórn, og núna þurfum við að láta verkin tala. Nú er kominn tími á það að við sýnum úr hverju við erum gerð og við breytum þessu kerfi.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: