- Advertisement -

Veit Dagur ekki hvað breytingarnar á Laugavegi munu kosta?

Spurningin er einföld: „Hver er áætlaður kostnaður við að breyta Laugavegi í varanlega göngugötu og hver er áætlaður kostnaður við að breyta Skólavörðustíg í varanlega göngugötu?“

Svar borgarstjóra er svona: „Borgarstjórn samþykkti 4. september 2018 að fela umhverfis- og skipulagssviði að útfæra Laugaveg og Bankastræti sem göngugötur allt árið. Á fundi skipulags og samgönguráðs 3. apríl 2019 var samþykkt að fela umhverfis- og skipulagssviði að vinna áfram að forhönnun og undirbúningi deiliskipulagsbreytingu á grundvelli áfangaskiptingar.“

Eins var spurt: „Hver er áætlaður framkvæmdatími við að breyta götunum í varanlegar göngugötur, hvenær er áætlað að byrja framkvæmdirnar og hvenær eru verklok áætluð?“

Aftur er svar Dags sérstakt: „Samkvæmt drögum að fjárfestingaráætlun fyrir árið 2020 er gert ráð fyrir 100 mkr í undirbúning, verkhönnun og kostnaði við útboð á 1. áfanga verksins. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við 1 áfanga hefjist á árinu 2021 og framkvæmdir við 2 áfanga á árinu 2022 og ljúki sama ár. Ekki liggja fyrir áætlanir um aðra áfanga verksins.“

Það voru Kolbrún Baldursdóttir, Flokki fólksins, og Vigdís Hauksdóttir Miðflokki sem spurðust fyrir.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: