- Advertisement -

Hverjir eru ríkustu Íslendingarnir og hvað eiga þeir mikið?

Það verður því kosið um hverjir eiga Ísland eða hverjir munu eignast meira af því.

Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar:

Hér hef ég skrifað grein um málefni sem ég veit að margir hér eru með áhuga á. Hverjir eiga Ísland? Ég veit að þetta er ansi langt fyrir Facebook en ég mæli þó með lestri.

Hverjir eru ríkustu Íslendingarnir og hvað eiga þeir mikið? Hvernig er hinni svokölluðu köku skipt? Hagstofan var að birta eignastöðu Íslendinga samkvæmt skattframtölum. Förum yfir fjögur atriði en ég veit að þetta er nokkuð langt í Facebook-heimi en ég mæli samt með því og að fólk staldri aðeins við þessar tölur.

1. Ríkustu 10% Íslendinganna á meira af hreinum eignum (eigið fé sem er eignir-skuldir) en restin af þjóðinni samanlagt, 90%-in. Sé litið til eigna eiga þessi 10% meira en 80% allra landsmanna.

2. Eignastaða 10% ríkustu Íslendinganna hefur aukist um 40% á fjórum árum!

3. Ríkustu 10% Íslendinganna eiga um 44% allra eigna í landinu og eiga þeir 54% af eigin fénu. Ef við stækkum aðeins hópinn upp í 20% ríkustu Íslendinganna þá eiga þeir 65% allra eigna í landinu.

4. Hin dæmigerða eignastaða Íslendings (miðgildi) er 7,4 milljón kr. á meðan á einstaklingur í topp 10% hópnum um 20 sinnum meira. Reyndar eiga hinir ríku meira sem nemur skattframtölum þar sem hlutabréfin þeirra eru skráð á nafnvirði en ekki markaðsvirði og þá ná skattframtölin auðvitað ekki til fjármuna þeirra í skattaskjólunum sem þeim er svo annt um eins og dæmin sýna.

Arðgreiðslur upp en veiðileyfagjöld niður

Þessu til viðbótar birtust nýlega tölur um afkomu í sjávarútveginum en margt af ríkasta fólki landsins kemur úr þeim geira og því tengist þetta. Förum yfir þrjú atriði hér:

1. Arðgreiðslur til eigenda útgerðarfyrirtækja er um 62 milljarðar kr. á undanförnum 5 árum. Til samanburðar er þessi upphæð næstum tvöfalt hærri en það sem allir framhaldsskólar landsins fá árlega. Hún er þrisvar sinnum hærri en það sem þessi ríkisstjórn setur í umhverfismál eða í Háskóla Íslands. Tvöfalt hærri en sem allar heilsugæslur landsins fá á hverju ári.

Arðgreiðslur eru fyrir utan ofurlaunin sem þessir kallar fá, eru fyrir utan hagnaðinn sem fyrirtækin þeirra sýna, eru fyrir utan hækkun hlutabréfa þeirra, fyrir utan söluhagnaðinn selji þeir þessi sömu hlutabréf. Árlegar arðgreiðslur sem renna beint í vasa útgerðarmannsins og fjölskyldu hans eru hærri en veiðileyfagjöldin sem eigandi auðlindarinnar, þjóðin, fær. Kíkjum á næsta punkt.

2. Veiðileyfagjöld hafa lækkað um næstum helming síðan þessi ríkisstjórn tók við. Veiðileyfagjöld eru gjöld fyrir aðgang að einum gjöfulustu fiskimiðum jarðar, sem eru nota bene í eigu þjóðarinnar samkvæmt lögum en ekki fyrirtækjanna.

Veiðileyfagjöld stórútgerðarinnar eru orðin lægri en sem nemur þeim kostnaði sem ríkið verður fyrir vegna útgerðarinnar. Veiðileyfagjöld stórútgerðarinnar eru núna orðin lægri en veiðileyfagjöld stangveiðimanna. Þegar Samfylkingin var síðast í ríkisstjórn var veiðileyfagjaldið sem rann til þjóðarinnar næstum þrisvar sinnum hærra en það sem nú er.

3. Hagnaður þessara fyrirtækja undanfarin 5 ár var um 200 milljarðar kr. Bókfært eigið fé útgerðarinnar var í fyrra um 300 milljarðar kr. og hafði hækkað um 60% á 5 árum.

Hverjir eiga Ísland?

Þessi gríðarlega eignasöfnun stórútgerðarinnar hefur þau áhrif að þessir einstaklingar og erfingjar þeirra geta síðan auðveldlega keypt sér inn í önnur svið íslensks hagkerfis. Og eignast meira og minna allt Ísland. Ætti ekki að kjósa um þessi mál?

Á sama tíma erum við með ríkisstjórn sem hefur lægsta fjármagnstekjuskatt af öllum Norðurlöndunum, hefur lækkað veiðileyfagjöld um helming og er á móti auðlegðarskatti. Þá kusu stjórnarflokkanir allir gegn tillögu stjórnarandstöðunnar um lækkun tryggingargjalds á smærri fyrirtæki vegna Covid. Nánast eina skattalækkunin sem hefur verið ráðist í á Covid tímanum var þegar ríkisstjórnin keyrði í gegn í vor sérstaka lækkun fyrir fyrirtæki sem „kaupa stór skip“.

Þessi sama ríkisstjórn kýs síðan reglulega í þingsal að tugir þúsunda Íslendinga, hvort sem þeir eru atvinnulausir, öryrkjar eða aldraðir eigi að lifa á 240 þús á mánuði.

Nú þegar Ísland er að ganga í gegnum sína dýpstu kreppu í 100 ár hlýtur fólk að sjá að nauðsynlegt er að kjósa hér flokka sem eru tilbúnir að tryggja hér réttlátt kerfi þar sem hagsmunir hins venjulega Íslendings eru í forgangi en ekki þess ofurríka.

Það verður því kosið um hverjir eiga Ísland eða hverjir munu eignast meira af því.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: